<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur

Matarfíkn - Matarfíkill 


Í Nepal breyttist ég í matarfíkil. Þegar ég vaknaði var það fyrsta sem ég hugsaði um hvenær ég fengi fyrsta matarskammt dagsins, á meðan ég var að borða hugsaði ég um hvað ég ætlaði að fá mér að borða ef ég skyldi rölta í bæinn. Eftir þá máltíð taldi ég klukkutímana að næsta dal-bhaat og þegar ég fór að sofa langaði mig í eitthvað sætt. Þegar ég var ekki í minni daglegu rútínu með sömu föstu máltíðunum snérist dagurinn um hvað ég fengi að borða yfir daginn - ætli það yrðu egg í morgunmat? Hlakkaði til að fá hádegismatinn og gat varla beðið efit kvöldmatnum... og svo þurfti auðvitað að troða sig út og borða eins og enginn væri morgundagurinn því ég vissi ekki hvenær ég fengi aftur almennilegan mat. Ég hlakkaði meira að segja til að fá flugvélamatinn og var búin að hugsa um heita langloku með skinku og osti í margar vikur.
Þetta er klikkað. Ég vissi ekki að það væri hægt að vera með mat svona mikið á heilanum.... að skipuleggja strax næstu máltíð á meðan maður væri að borða!

Við erum svo vön fjölbreyttum mat og að geta fengið allt sem okkur sýnist að borða þegar við viljum það. Þegar þetta frelsi er tekið af þér - þegar þú færð sömu máltíðina tvisvar á dag alla daga þá er fjandinn laus og þú hugsar um allan þann mat sem þú varst vanur að fá og ert að missa af.... þvílík græðgi, ég skammast mín!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?