<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur

Á svo erfitt með mig 

Það er nú gott að fólk er mismunandi, með mismunandi hæfileika og væntingar til lífsins.

Í síðustu viku byrjaði ég að reyna að prjóna. Ég horfi oft á tíðum á fallegar ullarpeysur og langar til að geta prjónað svoleiðis. Þannig að mamma splæsti á mig prjónum og garni og lét mig byrja að prjóna einfaldan garðarprjón (ekkert mjög professional í þessum prjónaorðum). Fram og til baka, ótrúlega einfalt. Mér er ekki ætla að prjóna, eða þá að ég svona hrikalega óvandvirk. Næ alltaf að bæta við lykkjum, missa lykkjur af prjóninum og almennt lúkkar þetta bara frekar illa. Eitthvað sem á að vera jafnt og beint verður það einfaldlega ekki.... hefur greinilega lítið breyst frá því í barnaskóla þegar ég reyndi að prjóna, löðrandi sveitt í lófunum því ég hélt svo fast á prjónunum. Sver að ég á eftir að enda með gigt í höndunum eftir þetta.

Hæfileikar mínir eru semsagt ekki tengdir handavinnu...  leyfi öðru fólki að njóta sín á þeim vettvangi.

Hinsvegar er ég grilluð í hausnum og er með ferðalög á heilanum. Er nýkomin heim frá Nepal og strax byrjuð að pæla í næstu ferð, sem verður til Chile (einhverntíman).
Ég er líka búin að skrá mig í ferðabloggaraklúbb og búin að stofna ferðabloggsíðu. Ég er búin að liggja inná síðum innflytjendaeftirlita og skoða hvernig er best að haga búferlaflutningum, ég skoða síður hjá fasteignasölum um allan heim að leita mér að húsi til að leigja. Þegar ég kem heim úr ferðalagi átta ég mig á því hvað ég á eftir að sjá mikið af heiminum í viðbót - og þess vegna verð ég að finna einhvern annan spennandi stað og drífa mig af stað.
Allt af því að hugurinn er sjaldnast þar sem líkaminn er.

Það er fínt að búa á Íslandi - öruggt land til að ala upp börn og stutt í allar áttir, eyðir ekki heilum degi í að ferðast í vinnuna eða sækja krakkana - heppin! Við erum rík af auðlindum, eigum eins mikið af heitu og köldu vatni og við viljum - heppin! Við eigum eins mikið af rafmagni og við viljum - heppin! Loftið er hreint og tært - heppin! Húsin okkar eru örugg og vel einangruð - heppin! Við erum frjáls þjóð og gerum það sem okkur sýnist - heppin! Eigum stórbrotna náttúru og orkan í jörðinni er gríðarleg - heppin!
Já Ísland er svo sannarlega gott land en samt erum við snillingar í nöldri. Við nöldrum yfir hverjum einasta litla hlut sem skiptir ekki nokkru einasta máli. Við vorkennum okkur svo mikið - aumingja við eigum svo bágt! Ég hélt ég yrði geðveik fyrstu vikurnar eftir að ég kom heim frá Nepal - þessi þjóð var að drepa mig úr nöldri. Er ekki enn farin að skoða fréttir því ég nenni ekki að hlusta á allt ruglið sem á sér stað hérna.
Útlitsdýrkun er svo annað mál sem ég hreinlega meika ekki lengur. Við erum mismunandi og það er það skemmtilega við lífið.
Mér finnst gaman að sjá mismunandi menningarheima, fjölbreytilegt mannlíf, hitta hæfileikaríkt fólk, takast á við nýja og spennandi hluti, koma á staði sem ég hef aldrei áður komið á og fá að kynnast hvernig hlutirnir eru gerðir á þeim stað... en það er bara ég!

Það er gott að fólk er mismunandi, með mismunandi hæfileika og væntingar til lífsins!


This page is powered by Blogger. Isn't yours?