<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur

Hugleiðingar við heimkomu 

Nú er ég búin að vera heima í tæplega 2 vikur og margir að spyrja mig hvernig ferðin hafi verið og hvað hafi komið mér mest á óvart. Þegar ég hugsa til baka þá get ég ekki annað en brosað og fengið örlítinn sting í hjartað af söknuði.
Þegar ég hugsa um Nepal er fátækt ekki það fyrsta sem kemur uppí hugann. Helstu minningarnar eru ekki vatns- og rafmagnsleysið, flautið í öllum bílunum sem keyrðu mig næstum niður, allur ógeðis skýturinn sem er útum allt, sú staðreynd að konur eru annars flokks í Nepal, allur hitinn, moskítóbitin, rútuferðir dauðans og skipulagsleysi... það sem situr eftir í hjartanu mínu er allt brosmilda fólkið; stelpan í næsta húsi sem þekkti mig með nafni og var alltaf að kalla á mig, konan í litlu búðinni á horninu sem brosti og vinkaði í hvert skipti sem ég labbaði framhjá, maðurinn sem fór með mig og Eygló í siglingu á vatninu og heilsaði okkur þegar við mættum honum útá götu og ekki síst brosandi andlit allra barnanna, sem búa oftar en ekki við ömurlegar aðstæður en eru samt glöð.

Að hugsa til þess að þrátt fyrir alla eymdina í þessu landi, fátæktina og skítinn þá gat mér ekki annað en liðið vel þarna og brosað með fólkinu sem náði að heilla mig alveg uppúr skónum og setjast að í hjartanu mínu!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?