<$BlogRSDUrl$>

mánudagur

Einn og yfirgefinn 

“... og ætlaru að skilja Óla eftir einan heima??” Þetta er yfirleitt spurningin sem kemur í framhaldi af því að ég tilkynni fólki að ég sé að fara til Nepal í 6 vikur. Skilja hann eftir einann – nei börnin verða líka heima.

Ætli fólk hafi áhyggjur af því að hann deyji úr hungri eða vakni einn daginn og eigi engin hrein föt. Við eigum ekki að “ala” karlmennina upp í því að vera ósjálfbjarga. Er það sjálfsagt mál að ég eigi að vera heima og elda matinn, þrífa heimilið, hugsa um börnin og vera í vinnunni minni? Ef það væri Óli sem væri að fara myndi fólk aldrei spyrja hvort hann ætlaði að skilja mig eftir eina – það yrði hið sjálfsagðasta mál.

Er þetta traustið sem við berum til karlmanna? Ég veit að Óli getur fullkomlega séð um heimilið, börnin og vinnuna sína án þess að ég sé að skipta mér af því. Ég hef engar áhyggjur, hann er dásamlegur maður. Við eigum líka yndilega fjölskyldu sem hjálpar til!

... vonandi finnur svo Óli hvað er gott að hafa mig á heimilinu þegar hann er búinn að vera laus við mig í þessar vikur :-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?