<$BlogRSDUrl$>

mánudagur

Djöfullsins snillingar 

Ég held að ég sé besti sölumaður í heimi.
Árið 2004 var ég á leiðinni til Ástralíu, alein að skottast á vit ævintýranna. Hafði í raun ekkert í höndunum nema helling af peningum. Á þeim tíma vann ég með henni Þóru minni og fór ég í það mjög skipulega að sannfæra hana um að lífið væri miklu betra án kærastans og með mér í Ástralíu - ég var svo sannfærandi að hún dömpaði gæjanum og kom með mér í besta ævintýri í heimi.

Núna er ég á leið til Nepal að vinna á munaðarleysingjaheimili - aftur ætlaði ég að dröslast þetta alein, með ekkert alltof mikinn pening í höndunum heldur full af bjartsýni og ævintýraþrá. Það þurfti ekki nema eitt partý til að heilaþvo elsku Eygló og sannfæra hana um að Nepal sé klárlega málið. Ferlið fór í gang og það er komið grænt ljós - kellan ætlar að fara með mér út!! Ó hvað ég er glöð og hnúturinn í maganum hefur aðeins slaknað.

Þóra og Eygló - þið eruð djöfullsins snillingar að stökkva á þessar klikkuðu hugmyndir mínar og koma með mér.... já og ég er augljóslega fanta góð í að selja svona hugmyndir :-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?