mánudagur
Einn og yfirgefinn
“... og ætlaru að skilja Óla eftir einan heima??” Þetta er yfirleitt spurningin sem kemur í framhaldi af því að ég tilkynni fólki að ég sé að fara til Nepal í 6 vikur. Skilja hann eftir einann – nei börnin verða líka heima.
Ætli fólk hafi áhyggjur af því að hann deyji úr hungri eða vakni einn daginn og eigi engin hrein föt. Við eigum ekki að “ala” karlmennina upp í því að vera ósjálfbjarga. Er það sjálfsagt mál að ég eigi að vera heima og elda matinn, þrífa heimilið, hugsa um börnin og vera í vinnunni minni? Ef það væri Óli sem væri að fara myndi fólk aldrei spyrja hvort hann ætlaði að skilja mig eftir eina – það yrði hið sjálfsagðasta mál.
Er þetta traustið sem við berum til karlmanna? Ég veit að Óli getur fullkomlega séð um heimilið, börnin og vinnuna sína án þess að ég sé að skipta mér af því. Ég hef engar áhyggjur, hann er dásamlegur maður. Við eigum líka yndilega fjölskyldu sem hjálpar til!
... vonandi finnur svo Óli hvað er gott að hafa mig á heimilinu þegar hann er búinn að vera laus við mig í þessar vikur :-)

Djöfullsins snillingar
Ég held að ég sé besti sölumaður í heimi.
Árið 2004 var ég á leiðinni til Ástralíu, alein að skottast á vit ævintýranna. Hafði í raun ekkert í höndunum nema helling af peningum. Á þeim tíma vann ég með henni Þóru minni og fór ég í það mjög skipulega að sannfæra hana um að lífið væri miklu betra án kærastans og með mér í Ástralíu - ég var svo sannfærandi að hún dömpaði gæjanum og kom með mér í besta ævintýri í heimi.
Núna er ég á leið til Nepal að vinna á munaðarleysingjaheimili - aftur ætlaði ég að dröslast þetta alein, með ekkert alltof mikinn pening í höndunum heldur full af bjartsýni og ævintýraþrá. Það þurfti ekki nema eitt partý til að heilaþvo elsku Eygló og sannfæra hana um að Nepal sé klárlega málið. Ferlið fór í gang og það er komið grænt ljós - kellan ætlar að fara með mér út!! Ó hvað ég er glöð og hnúturinn í maganum hefur aðeins slaknað.
Þóra og Eygló - þið eruð djöfullsins snillingar að stökkva á þessar klikkuðu hugmyndir mínar og koma með mér.... já og ég er augljóslega fanta góð í að selja svona hugmyndir :-)

Fjólublátt ljós við barinn
Ég fór inní nýja árið með fjólubláan rass... hlunkaðist niður 5 tröppur heima hjá mér og uppskar stærsta marblett í heimi; 20x15 cm dökkfjólublátt flykki. Er núna farinn að skipta um lit, er orðinn gul-grænn og blessunarlega í rénum!
Dhanyabad, toilet kahaa chha - vissara að læra þetta svona áður en niðurgangspestin skellur á mér.