<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

I´m back 

Hef saknað þessarar síðu svolítið mikið uppá síðkastið. Hér er neflilega hægt að finna allskonar skemmtilegar lyga- og ýkjusögur:

Alveg ótrúlega skemmtileg lesning á köflum og gaman að rifja upp góða tíma.

Nú tekur enn eitt ævintýrið við þegar ég skelli mér til Nepal þann 13. febrúar. Ég finn hvernig hnúturinn í maganum stækkar og er farinn að hafa áhrif á svefninn minn. Er á ferðalagi með einhverjum þeim stærsta tilfinningarússibana sem ég hef kynnst. Ég er mega stressuð en líka ógeðslega spennt. Fæ tár í augun þegar ég hugsa um að sjá ekki Helgu mína í 6 vikur. En þetta er svo stuttur tími að ég verð komin heim áður en ég veit af.

Hlakka svo til að upplifa eitthvað allt annað en það sem ég er að gera núna, að snúa lífinu mínu við í þessar vikur og krossa putta að ég deyji ekki úr niðurgangi eða einhverjum öðrum pestum. Amma er viss um að ég verði seld í eitthvert kvennabúr.... en það er ekki hægt að lifa í stanslausum ótta – þá gerði maður nú varla margt annað.

Lofa ekki bloggi frá Nepal en annars veit maður aldrei - allavega gaman að vera búin að opna þessa síðu aftur :-)



This page is powered by Blogger. Isn't yours?