<$BlogRSDUrl$>

mánudagur

Endurminningar 

Við vorum 5, 7 og 10 ára. Í stofunni voru tveir bast stólar og einn gamall ruggustóll. Minnsta dýrið lá yfirleitt á gólfinu fyrir framan sjónvarpið á meðan hin tvö sátu saman í ruggustólnum. Þetta kvöldið fengum við að borða kvöldmatinn í stofunni (var örugglega Baywatch eða Hart Break High í sjónvarpinu). Mamma var búin að steikja lifur, einhvern þann ógeðslegasta mat sem ég hef smakkað. Ég fékk 15 bita á diskinn minn sem ég átti að klára, man hvað ég kúgaðist þegar ég setti þetta uppí mig. Jæja, rölti inní stofu og settist í ruggustólinn, sá minnsti kom og settist við hliðina á mér og við byrjuðum að týna bitana uppí okkur. Allt í einu kemur elsta barnið inní stofuna og með harðri hendi skipar hann mér að drulla mér úr stólnum því hann ætli að sitja þarna.... ekki lét ég skipa mér fyrir og sat því sem fastast og neitaði að fara. Drengurinn greyp þá til kúgunaraðferðar, snéri sér við og prumpaði í matinn minn.... ég stökk á fætur alveg brjáluð og fór inní eldhús til foreldranna þar sem ég klagaði þennan stóra kúgara minn. Maturinn á disknum mínum endaði í ruslinu, fékk hinsvegar nýjan skammt á diskinn, aðra 15 bita (og ég sem var örugglega búin að borða svona 7 bita og var alveg að klára af disknum).
Man ekkert hvað var gert við drenginn en ég sat ekki í ruggustólnum þetta kvöldið!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?