mánudagur
”Þar sem Öxará rennur ofaní Almannagjá...”
Fórum í ansi gott ferðalag um helgina, stoppuðum stutt í Reykjavík, aðallega bara til að sofa og borða. Tókum tæplega 7 tíma í að koma okkur til Reykjavíkur á föstudaginn þar sem við sátum með Vegaatlasinn í fanginu og lásum örnefni á leiðinni og stoppuðum víða. Við klöngruðumst inní Kotagil, fannst við hæfi að borða nestið okkar í Ólafslundi og hlupum uppá Grábrók.... frekar mikið sport.

Ákváðum að tékka aðeins á Þingvöllum á leiðinni heim í gær, heilsa uppá Snorrabúð og taka púlsinn á Drekkingarhyl. Hentum líka mörgum milljónum í peningagjánna og óskuðum okkur stíft. Tókum svo Kaldadalinn í framhaldi af því þar sem við komumst yfir 60km á 2 tímum, agalega sléttur og góður vegur þar á ferð. Eigum heimsmetið í stuttu stoppi í Húsafelli og fögnuðum stíft þegar við sáum loksins Akureyri eftir allof mikla keyrslu.