<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

Illa farin 

Extra slæmur dagur í dag... ofnæmið er alveg að fara með mig, er með mjúkann og góðann horpappír í hendinni sem tekur við þessu ofsafengna horstreymi úr nefinu á mér, hnerra eins og enginn sé morgundagurinn og aumingja samstarfsfólk mitt er komið með í eyrun af látunum í mér, ég er að vera geðveik. Sver það mér finnst eins og ég sé komin á breytingaskeiðið, steypast yfir mig þessi svitaköst, sokkin augu og almenn vanlíðan.... þvílíkt tussuleg!

... ég er farin útí apótek að versla mér lyf fyrir alla peningana mína.

miðvikudagur

WHY? 

Lenti á spjalli við konu um daginn þekki lítillega. Vorum eitthvað að ræða helgina og svona og hún sagðist vera að fara að halda uppá afmælið sitt þar sem hún yrði nú fertug á næstu dögum.....
Ég blikkaði hana bara og jájá einmitt... hahah, góður brandari. Alltaf gaman að vera mörgum sinnum fertug. Var alveg sannfærð um að hún yrði að minnsta kosti sextug!

.... hún var ekkert að ljúga, varð fertug og það kannski útskýrir þennan agalega undurnarsvip á henni þegar ég fór að hlægja og blikka hana eins og ég væri með einhvern sjúkdóm í augunum. Hressandi!!

fimmtudagur

Grímsey here I come 

Fór í sjóstangaveiði í gærkvöldi, agalega var næs að standa úti í vindinum og fá saltan sjóinn beint í andlitið annað slagið. Borðuðum svo bláskel í Hrísey... einmitt, ég er svo fullorðin að þetta nær engum enda. Smakkaðist nú bara ljómandi vel verð ég að viðurkenna. Hefði nú samt án efa borðað skelina þótt hún hefði verið vond, ég er svo vel upp alin sjáiði til. Man þegar ég fór einhverntíman í matarboð og það var laxamús eða eitthvað álíka slepjulegt í forrétt, búið að skammta á diskinn og bara gjörðu svo vel að borða þetta.... úfff, safnaði saman fullt af munnvatni, stakk svo einum bita uppí mig, blandaði honum vel saman við munnvatnið en passaði að tyggja ekki neitt og svo var bara kyngt... alveg hrikalegt að endurtaka þetta 20 sinnum!! En já, þetta var agalega næs ferð og ekki leiðinlegt að sigla heim í miðnætursólinni með sultardropana lekandi niður úr nefinu.
Í dag er hátíðardagur.... 12. júní er í miklu uppáhaldi. 14 ár frá fermingu og 4 ár frá háskólaútskrift. Verð alveg klárlega að gera eitthvað spennandi þennan dag eftir 6 ár, ekki seinna vænna en að byrja að plana það!

En í kvöld ætla ég að vera flott á því og skella mér til ”útlanda”, rölta yfir heimskautsbaug og hafa það kósí í góða veðrinu. Verður styðsta utanlandsferð mín til þessa, einungis klukkutími og korter en er það ekki nóg?

mánudagur

”Þar sem Öxará rennur ofaní Almannagjá...” 

Fórum í ansi gott ferðalag um helgina, stoppuðum stutt í Reykjavík, aðallega bara til að sofa og borða. Tókum tæplega 7 tíma í að koma okkur til Reykjavíkur á föstudaginn þar sem við sátum með Vegaatlasinn í fanginu og lásum örnefni á leiðinni og stoppuðum víða. Við klöngruðumst inní Kotagil, fannst við hæfi að borða nestið okkar í Ólafslundi og hlupum uppá Grábrók.... frekar mikið sport.


Ákváðum að tékka aðeins á Þingvöllum á leiðinni heim í gær, heilsa uppá Snorrabúð og taka púlsinn á Drekkingarhyl. Hentum líka mörgum milljónum í peningagjánna og óskuðum okkur stíft. Tókum svo Kaldadalinn í framhaldi af því þar sem við komumst yfir 60km á 2 tímum, agalega sléttur og góður vegur þar á ferð. Eigum heimsmetið í stuttu stoppi í Húsafelli og fögnuðum stíft þegar við sáum loksins Akureyri eftir allof mikla keyrslu.




Agalega var svo erfitt að krönglast uppúr besta rúmi í heimi í morgun...

fimmtudagur

Fortíðarþrá 

Núna er hjólið frekar mikið notað og reyni ég skransa eins og ég get út um allan bæ, hjóla í sandhólum og fer í torfærur á byggingarsvæðum... fór í langan hjóltúr með krakkann í gær og ætlaði að rifja upp sleppahöndum- taktana. Fáránlegt, ég bara hélt ekki jafnvægi og var eins og misheppnuð alltof gömul kelling á hjóli sem lifir á fornri frægð. Greinilegt að hæfileikar dofna með aldrinum, var alltaf úti að hjóla í gamladaga, upp brattar brekkur og brunaði svo niður þær aftur, helst með hendur fyrir aftan bak... bara eins og allir krakkar. Núna er búið að skemma þessar brekkur með allskonar hraðahindrunum og allir eru með hjálm... breyttir tímar!

Svo er ég að reyna að halda í æskuna, tekst nokkuð vel þar sem ekki nokkur einasti maður trúi því að ég sé að verða fertug. Leyndarmálið hingað til hafa að sjálfsögðu verið bollukinnarnar góðu, meina hver er með svona vel fylltar og flottar kinnar nema krakkar?? Svo er það baby Johnson kremið sem ég hef notað síðan ég var 14 ára (sennilega ástæðan fyrir því af hverju ég er stöðnuð í útliti) en núna krakkar mínir verður breyting á... það er hætt að selja kremið og því aldrei að vita nema ég fari allt í einu að eldast agalega hratt.....

Helgin.... ég tek gömlu konu taktana á þetta og smyr nesti ofaní drengina mína áður en við hendumst í rigninguna í Reykjavík. Krossa fingur að það verði bjart veður á sunnudaginn, þá getum við skotist með krakkann á Þingvelli og farið einhverja afbrygðilega leið heim.

Keipps..... Er brúðkaup eftir akkúrat mánuð, best að svelta sig þangað til svo ég fitti inní ættarformið :-)

mánudagur

Go west 

Stórkostlegt að hlusta á fulla íþróttahöll af pólskum handboltabullum syngja Go West.... ég var annars eins og hver einasti Íslendingur í gær og horfði spennt á Ísland vinna Svía í handboltanum í gær. Elvar spurði hvort Bjössi væri í sænska liðinu.... hefði borgað mikið fyrir að sjá þann sirkus. Auðvitað sá Hreiðar um að halda markinu lokuðu og vil ég meina að allur bjórinn sem ég hef gefið honum í gegnum tíðina hafi gefið honum góðan vítamínskammt.

Svo var það kappinn sem átti afmæli á laugardaginn, þessi með brúnu lærin og fallegu röddina.... smá Dallas flash-back ;-)

Finn að ég verð að komast í sumarfrí.... það verður farin reisa um Austurlandið þetta árið, Suðurlandið skannað og ætli maður reyni ekki að spæna yfir Kjöl sem allra fyrst. Tjaldið er reddy þannig að þá er bara næsta skref að skrópa í vinnuna...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?