mánudagur
What are you talking about?
Fór á Wake me Up á laugardagskvöldið og horfði á Bóbó frænda sprikkla um á brókinni á milli þess sem hann tók blokkflautusóló á sviðinu... var svoleiðis lang flottastur í þessari sýningu sem var mjög skemmtileg, alltaf gaman að sjá drottninguna á sviði!!
Óli fór svo bara í Sjallann að djamma í tilefni afmælisins, um að gera að lifa í þeirri sjálfsblekkingu að maður sé ennþá bara 18 ára!

Svo er það barnalandssaga vikunnar; Barnið er duglegt að spyrja hvað hitt og þetta þýði á ensku og langar augljóslega mikið til að læra það tungumál.... ég og Óli tölum stundum saman á ensku í kringum hann, mjög góð leið til að losna við allskonar fyrirspurnir um það sem við erum að ræða. Það besta er að uppá síðkastið þegar við erum að laumupúkast á ensku grípur litli maðurinn framí fyrir okkur og segir: What are you talking about??
Algjört eðal þessi drengur eins og ég hef svo oft áður sagt :-)