<$BlogRSDUrl$>

mánudagur

Sól og sumar.... nordurland.is 

Byrjaði helgina á leikhúsferð þar sem við hlógum okkur til máttleysis, fengum okkur svo gott að borða og nutum þess að láta ömmuna stjana við barnið.
Við hjóluðum svo útum allan bæ á laugardaginn í yndislegu veðri... meðal annars í heimsókn til Stefaníu þar sem turtles og íþróttaálfurinn léku sér af fullum krafti á gröfum og í bardagaleikjum.
Júró tjútt hjá Lóu sem heppnaðist alveg gríðarlega vel. Stúlkurnar voru mis hressar og mojito æðið í algleymingi, Birna algjör snillingur að blanda það sull.
Ég tók video af Birnu sem verður óhikað sýnt í brúðkaupinu hennar og bara almennt snilldar bull sem rann uppúr henni á meðan Lóa hringdi í alla kærasta sem hún þekkir. Harpa reyndi að koma af stað ægilegum drykkjuleik sem hefði endað með ósköpum hefðum við haldið honum áfram... Birna brjálaðist þegar ég spurði hvort hún væri ekki í góðri þjálfun að æla þar sem hún hlyti að hafa einhverntíman verið með búlemíu svona eins og við allar.... svo var það gæinn í júró sem var að gefa stig frá Svíþjóð, ég krossaði mig nú bara og hringdi í Bjössa til að votta honum samúð mína fyrir að búa í þessu húmorslausa landi.
Bærinn var mjög slakur og greinilegt að trixin okkar við að smygla okkur inn og fá strax afgreiðslu á barnum eru útrunnin.... löggan var alltof busy til að skutla mér og Birnu heim þannig að við húkkuðum far með leigubíl sem skutlaði okkur frítt heim.
Aldrei að vita nema ég hendi inn myndum við tækifæri ;-)

Svo var bara vaknað snemma í gær og brunað í Kjarnaskóg þar sem við lékum okkur heillengi og enduðum daginn á svalandi Brynjuís, þvílíkt yndislegt!! Svo heldur blíðan bara áfram og ekkert lát á skemmtilegheitunum... mér skilst að það sé skylda að fara í vatnsblöðruslag eftir leikskóla í dag, spennandi það.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?