<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

Heilaþvottur 

Fórum að leika okkur á róló um daginn, Elvar skoppaði um allt á meðan ég og Óli sleiktum sólina. Þarna voru tvær stelpur búnar að koma sér vel fyrir á stéttinni með allt barbie dótið sitt og svo litli bróðir þeirra að leika sér í rólunum. Elvar er félagslyndur með eindæmum og talar helst við alla sem hann sér.... þannig að sjálfsögðu byrjar hann að spjalla við strákinn sem reyndist vera 4 ára. Stóra systirin horfir á úr fjarlægð og þegar hún sér að Elvar er kannski farinn að spjalla full mikið við bróðurinn kallar hún á hann og segir; þú veist að það er bannað að tala við ókunnuga, af hverju ertu að tala við þennan strák???!!!!
Jahá.... augljóslega búið að heilaþvo þetta barn full mikið.

Eins mikið og mér finnst Friðrik Ómar glataður og líta út eins og plast dúkka þá fannst mér hann alveg frábær í gærkvöldi í Júró og ég hlakka ekkert smá til að sjá þau aftur á sviðinu á morgun.... vá hvað þau lögðu gjörsamlega allt í þetta atriði og áttu svo sannarlega skilið að komast áfram. Þar af leiðandi er komin frábær afsökun til að fara í partý og láta eins og fíbbl!! Skemmtilegustu djammvinkonurnar (eða það vantar reyndar Karen) ætla að hittast hjá Lóu annaðkvöld... fjúfff, er bara hálf stressuð það er svo langt síðan ég hef djammað eitthvað að ráði.... Mun klárlega ekki standa undir nafni eeennnnnn það splittar ekki diff.

Góða helgi og við sjáumst á djamminu á morgun..... skál :-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?