<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

www.katalitla.barnaland.is 









Jessörí, þannig er nú það..... góða helgi :-)

mánudagur

Sól og sumar.... nordurland.is 

Byrjaði helgina á leikhúsferð þar sem við hlógum okkur til máttleysis, fengum okkur svo gott að borða og nutum þess að láta ömmuna stjana við barnið.
Við hjóluðum svo útum allan bæ á laugardaginn í yndislegu veðri... meðal annars í heimsókn til Stefaníu þar sem turtles og íþróttaálfurinn léku sér af fullum krafti á gröfum og í bardagaleikjum.
Júró tjútt hjá Lóu sem heppnaðist alveg gríðarlega vel. Stúlkurnar voru mis hressar og mojito æðið í algleymingi, Birna algjör snillingur að blanda það sull.
Ég tók video af Birnu sem verður óhikað sýnt í brúðkaupinu hennar og bara almennt snilldar bull sem rann uppúr henni á meðan Lóa hringdi í alla kærasta sem hún þekkir. Harpa reyndi að koma af stað ægilegum drykkjuleik sem hefði endað með ósköpum hefðum við haldið honum áfram... Birna brjálaðist þegar ég spurði hvort hún væri ekki í góðri þjálfun að æla þar sem hún hlyti að hafa einhverntíman verið með búlemíu svona eins og við allar.... svo var það gæinn í júró sem var að gefa stig frá Svíþjóð, ég krossaði mig nú bara og hringdi í Bjössa til að votta honum samúð mína fyrir að búa í þessu húmorslausa landi.
Bærinn var mjög slakur og greinilegt að trixin okkar við að smygla okkur inn og fá strax afgreiðslu á barnum eru útrunnin.... löggan var alltof busy til að skutla mér og Birnu heim þannig að við húkkuðum far með leigubíl sem skutlaði okkur frítt heim.
Aldrei að vita nema ég hendi inn myndum við tækifæri ;-)

Svo var bara vaknað snemma í gær og brunað í Kjarnaskóg þar sem við lékum okkur heillengi og enduðum daginn á svalandi Brynjuís, þvílíkt yndislegt!! Svo heldur blíðan bara áfram og ekkert lát á skemmtilegheitunum... mér skilst að það sé skylda að fara í vatnsblöðruslag eftir leikskóla í dag, spennandi það.

föstudagur

Heilaþvottur 

Fórum að leika okkur á róló um daginn, Elvar skoppaði um allt á meðan ég og Óli sleiktum sólina. Þarna voru tvær stelpur búnar að koma sér vel fyrir á stéttinni með allt barbie dótið sitt og svo litli bróðir þeirra að leika sér í rólunum. Elvar er félagslyndur með eindæmum og talar helst við alla sem hann sér.... þannig að sjálfsögðu byrjar hann að spjalla við strákinn sem reyndist vera 4 ára. Stóra systirin horfir á úr fjarlægð og þegar hún sér að Elvar er kannski farinn að spjalla full mikið við bróðurinn kallar hún á hann og segir; þú veist að það er bannað að tala við ókunnuga, af hverju ertu að tala við þennan strák???!!!!
Jahá.... augljóslega búið að heilaþvo þetta barn full mikið.

Eins mikið og mér finnst Friðrik Ómar glataður og líta út eins og plast dúkka þá fannst mér hann alveg frábær í gærkvöldi í Júró og ég hlakka ekkert smá til að sjá þau aftur á sviðinu á morgun.... vá hvað þau lögðu gjörsamlega allt í þetta atriði og áttu svo sannarlega skilið að komast áfram. Þar af leiðandi er komin frábær afsökun til að fara í partý og láta eins og fíbbl!! Skemmtilegustu djammvinkonurnar (eða það vantar reyndar Karen) ætla að hittast hjá Lóu annaðkvöld... fjúfff, er bara hálf stressuð það er svo langt síðan ég hef djammað eitthvað að ráði.... Mun klárlega ekki standa undir nafni eeennnnnn það splittar ekki diff.

Góða helgi og við sjáumst á djamminu á morgun..... skál :-)

mánudagur

What are you talking about? 

Fór á Wake me Up á laugardagskvöldið og horfði á Bóbó frænda sprikkla um á brókinni á milli þess sem hann tók blokkflautusóló á sviðinu... var svoleiðis lang flottastur í þessari sýningu sem var mjög skemmtileg, alltaf gaman að sjá drottninguna á sviði!!
Óli fór svo bara í Sjallann að djamma í tilefni afmælisins, um að gera að lifa í þeirri sjálfsblekkingu að maður sé ennþá bara 18 ára!


Svo er það barnalandssaga vikunnar; Barnið er duglegt að spyrja hvað hitt og þetta þýði á ensku og langar augljóslega mikið til að læra það tungumál.... ég og Óli tölum stundum saman á ensku í kringum hann, mjög góð leið til að losna við allskonar fyrirspurnir um það sem við erum að ræða. Það besta er að uppá síðkastið þegar við erum að laumupúkast á ensku grípur litli maðurinn framí fyrir okkur og segir: What are you talking about??

Algjört eðal þessi drengur eins og ég hef svo oft áður sagt :-)

föstudagur

Afmælisstrákurinn 


Auðvitað kemur sól um leið og Óli á afmæli, svo mikill sólargeisli þessi elska. Já klárlega tími til kominn að sækja ruslafötu til að æla í!! Veit ekki alveg hvernig ég á að geta skrifað eitthvað um hann Óla minn án þess að það verði alveg ógeðslega væmið og leiðinlegt aflestrar.... Er alveg gríðarlega ánægð með að hann hafi komið inní líf mitt og á þessum líka skemmtilega tímapunkti, dröslaði mér útaf skemmtistöðunum og inní rólegt heimilislíf. Vissulega mjög stórt stökk en svo sannarlega þess virði...
Lífið okkar saman er bara rétt að byrja en mér finnst eins og við séum búin að vera gift í mörg ár... fjúffff, kominn tími á að hringja á Hrafnistu og panta herbergi!!


Hlakka til að sjá þig í kvöld gamli kall :-*


miðvikudagur

Gleymdi einu... 

Fastagesturinn á barninn til mín á Kaffi Akureyri, meðstjórnandinn í fyrirtækinu Snillingar ehf, kommentari dauðans á þessari síðu, mesti djammari í heimi og alveg frábær mamma og vinkona.... til hamingju með daginn um daginn Birna mín :-*



Barcelona 

Við erum alltaf einstaklega heppin með flugfreyjur og í þetta skiptið var það systir Sigurjóns Kjartanssonar (eða hann sjálfur klæddur sem kona) sem þjónaði okkur í allri sinni dýrð og fengum við að njóta þess að horfa á vel greitt hárið á henni og eld rauða varalitinn í 4 klukkutíma. Við brunuðum beint uppá hótelið okkar og þar sem Óli er búinn að nöldra stanslaust í mér hvað hótelið okkar í London var mikil rottuhola ákvað ég að panta eitthvað aðeins betra í þetta skiptið.... um leið og við opnuðum hurðina inní herbergið stoppuðum við bæði og sögðum bara vááá! Þvílíkt geggjað herbergi og útsýnið var brjálæðislegt.
Við sátum því bara mestmegnis á brókinni uppá hótelherbergi og borðuðum Lionbar.


Þar sem við erum alveg einstaklega skipulögð náðum við að sjá allt sem við ætluðum að sjá og gera. Skelltum okkur uppá Tibadabu og þar var þessi kirkja og hressandi skemmtigarður, Jesús trónir þarna á toppnum og skelltum við okkur því upp og heilsuðum uppá hann.

Nóg er af eldgömulum og flottum byggingum út um allt og er borgin svoleiðis húðuð með mósaík. Hér er Óli að reyna að troða sér í gegnum mósaík-völundarhús!

Einmitt... útsýnið var bara geggjað úr herberginu okkar. Óli bara rétt skrapp í buxur á meðan við fórum út að borða, annars var hann á brókinni.
Hangandi utaná kirkju.
Í Parc Güell þar sem mósaíkið fékk að njóta sín sem aldrei fyrr, alveg meiriháttar garður.

Svona lít ég semsagt út þegar ég er lokið inní mjög þröngri gamalli krikju.... Sagrada Familia.

Vatnsskortur hrjáir víst Barcelonabúa um þessar mundir og því engir gosbrunnar í gangi... en þarna er einmitt eðal gosbrunnashow í gangi undir venjulegum kringumstæðum. En þá höfum við bara góða ástæðu til að fara aftur til Barcelona :-)
... einmitt, gosbrunnastaðurinn!
Óli vildi ólmur fá að strjúka eðlunni í Parc Güell.

Alltaf að klifra upp kirkjur og skoða útsýnið.
Jibbíkóla.... alveg geggjuð ferð :-)
Svo var það fótboltaleikurinn sem endaði 6-0... vá hvað Valencia er lélegt lið. Mikil stemmning og nóg af mörkum... Harpa var svo mikill snillingur að redda okkur miðum á leikinn!

Annars þá er greinilegt að Spánverjar eru ekkert í því að flassa kóngafjölskyldunni eins mikið og Bretar. Leitaði útum allt að póstkorti með mynd af drottningarfólkinu til að senda Bjössa en fann ekki neitt..... gríðarlegt svekkelsi!

Þessi borg er æði!

Adios :-)


This page is powered by Blogger. Isn't yours?