mánudagur
Leigubílasögur
Ég flakka full mikið um Reykjavíkurborg í leigubílum, hef reyndar fengið að kynnast hinum ýmsu bílstjórum á þessu brölti mínu og held ég að ég get fullyrt að þeir eru allir meira eða minna eitthvað skrýtnir. Svei mér þá ef þeir líta ekki flestir út eins og semi-mongólítar. Sumir eru nú reyndar ekkert að nenna að spjalla við mann og mér finnst það lang best en svo eru það þessir spjallóðu sem fá umfjöllun um sig á síðum sem þessari.

- Var á leið til Gautaborgar um daginn og tók leigubíl frá flugvellinum og á hótelið mitt (er svo heppin að búa útá landi þannig að ég þarf að gista eina nótt í Reykjavík.... ennþá allavega). Jæja, eitthvað var kauða heitt í hamsi af því að uppúr þurru byrjar hann að tala um fólk sem fær dagpeninga, gistir á hótelum og fer til útlanda á kostnað fyrirtækisins.... algveg nákvæmlega það sem ég var að gera í þessari ferð, fara á sýningu í Svíþjóð og á fullum dagpeningum. Hann lét svoleiðis dæluna ganga og var svo yfir sig hneykslaður að ég var að hugsa um að stökkva út á ferð. Loksin spyr hann mig hvar ég vinni og hvað ég sé að gera í Reykjavík.... sagði honum bara að ég væri hjúkka og á leið í heimsókn til bróður míns í Svíþjóð. Honum leist svo vel á mig að hann lét mig fá símanúmerið sitt sem ég misnotaði um morguninn og fékk hann til að skutla mér á BSÍ, þegar ég svo borgaði fyrir herlegheitin skoðaði hann kortið mitt, horfði á mig með ógeðisglott í augunum og sagði: Katrín, hún klikkar ekki!!
- jæja, einn gamall kall. Greinilega eitthvað langt síðan hann hefur farið út fyrir Mosfellsbæ ef hann hefur þá einhverntíman gert það. Ávarpaði mig alltaf sem "þið landsbyggðarfólkið" og talaði við mig eins og ég væri 86 ára gömul kona að koma í kaupstaðarferð. "Það er ekki Bónus fyrir norðan er það? Nú, og kannski Nettó líka? jahérna, eruð þið ekki háð okkur hér í Reykjavík? Er það ekki, er allt til alls þarna útá landi?"
- Annar ávarpaði mig sem skíðadrottninguna þar sem ég er frá Akureyri, hjóta allir að vera góðir á skíðum ef þeir búa fyrir norðan. Sjálfur var hann ættaður frá Siglufirði, á hús þar sem dóttir hans notar með honum, hann á 2 dætur, önnur var að biðja hann um að setja sumardekkin undir bílinn, það er nóg að gera hjá honum að sinna dætrunum, já og afabörnunum, hann á 7 barnabörn, þau eru öll góð á skíðum.... jæja, ég er komin á áfanga stað og erfitt að fá manninn til að hætta að tala.....
- Hahaha, ertu frá AKureyri... AKureyri.... talið þið ekki öll svona þarna útá landi??
