<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur

Á leið til glötunar 

Æi mér er ekki viðbjargandi.... var að opna svona Facebook rugl (bara forvitni og ekkert annað!). Skráði mig inn og bað Bjössa um að vera vinur minn og þar með var ég komin með ógeð á þessu og er að reyna að finna út hvernig ég get eytt þessu helvítis drasli aftur... þetta er alveg jafn glatað og myspace.

En jæja, ætli apríl líði ekki alveg jafn hratt og mars... planaður póker um helgina, matarboð hjá Hörpu helgina þar á eftir, 5 ára afmælisveisla helgina eftir það og svo Barcelona! Skal alveg viðurkenna það að ég er með stresshnút í maganum yfir afmæliskökunni. Held að besta ráðið sé að fá mömmu í heimsókn, það getur ekki klikkað. Svo verða grillaðar pylsur og keypt litil kók í gleri... mikil stemmning í því!

Smá saga af guttanum svona í lokin... kræst þetta er farið að hljóma eins og barnalandssíða!!
Fyrir nokkrum vikum síðan komu stelpurnar og makar í smá pizzu og bjór til okkar.... ég fór og sótti Hörpu og Óla þar sem þau eiga ekki bíl. Elvar var agalega hissa á því og spurði frekar undrandi af hverju þau ættu ekki bíl. Við útskýrðum fyrir honum að það kostaði mikla peninga að eiga bíl og svo eru ekki allir sem þurfa á svoleiðis að halda. Drengurinn vorkenndi Hörpu og Óla svo mikið að hann sagðist ætla að gefa þeim pening úr sparibauknum sínum til að hjálpa þeim og á meðan ég var að sækja þau hjónin klifraði Elvar uppá bekk og bað pabba sinn vinsamlegast um að hjálpa sér að ná í sparibaukinn... algjört eðal þessi drengur!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?