<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

Facebook fréttir 

Núna er ég búin að sanka að mér nokkrum “vinum” á vefnum og get farið að njósna um fólk. Ég er ekki enn búin að sjá tilganginn með þessu forriti og efast um að ég muni nokkurntíman gera það. Maður gengur kaupum og sölum á netinu, myndir af manni eru keyptar af einhverjum Himanshu á Indlandi og boðskort í allskonar klúbba hrúgast inní pósthólfið mitt... veit í rauninni ekki alveg hvað mér finnst um þetta allsaman.

Að öðru... Í dag er það hún Lóa mín sem skríður hægt og rólega nær 30 árunum. Lóa er keppnismanneskja mikil og sést það kannski best á því að hún þrjóskast enn við að drita niður einni og einni færslu á bloggið sitt bara til að tapa ekki í bloggkeppninni ógurlegu sem hófst fyrir næstum því 5 árum síðan.... þá vorum við sko ungar og vitlausar. Lóa á næturvöktum á geðdeildinni og ég hringdi reglulega í hana til að leyfa henni að upplifa djammið beint í æð. Vorum svona létt grillaðar í hausnum.
Svo er hún Lóa líka gift, sú eina í vinkonuhópnum sem hefur gengið uppað altarinu en ég hef fulla trú á að nú fari hinar að hennar ráðum.... allavega hefur Lóa sýnt að það er alveg hættulaust að játast einum manni.

Til hamingju með daginn elsku Lóa mín :-*

This page is powered by Blogger. Isn't yours?