þriðjudagur
Örverpið
Litli spastíski bróðir minn á afmæli í dag.... væri alveg til í að vera einhversstaðar útí heimi og skála fyrir kauða í sér blandaða samkynhneygða kampavínskokteila en það verður bara að bíða betri tíma. Þessi drengur er með þeim fyndnustu sem ég þekki og kann ég alveg endalaust mikið af brilliant sögum af honum, frábær gaur..... verður stuð þegar hann giftir sig maður (en þá þýðir ekkert að drösla einhverjum svía uppað altarinu sem skilur ekki neitt, hehe)Æðsta ósk Brjánsa er að komast á tónleika með Hanson bræðrum!!
mánudagur
Apríl 2008
Við erum búin að brasa mikið þennan mánuðinn....
Hinn örlagaríki dagur 27. apríl var í gær og því pjakkurinn á heimilinu orðinn 5 ára.... eins og sést verður maður ægilegur töffari og getur allt þegar maður er 5!!
Helginni eyddi ég því í kökubakstur og var metnaðurinn virkilega mikill þetta árið. Sem betur fer var ég búin að prufukeyra spiderman kökuformið einu sinni áður og var því ekki lengi að blikka mömmu og fá hana til að hjálpa mér með afmælistertuna.... mamma mín er algjör snillingur eins og sést á þessari mynd:
Fórum með Elvar á Minjasafnið þar sem við kynntum fyrir honum meðal annars fornleyfauppgröft á Gásum... eru myndir bæði af mér og Óla á safninu, ekkert merki um að maður sé gamall.
Hinn örlagaríki dagur 27. apríl var í gær og því pjakkurinn á heimilinu orðinn 5 ára.... eins og sést verður maður ægilegur töffari og getur allt þegar maður er 5!!
Helginni eyddi ég því í kökubakstur og var metnaðurinn virkilega mikill þetta árið. Sem betur fer var ég búin að prufukeyra spiderman kökuformið einu sinni áður og var því ekki lengi að blikka mömmu og fá hana til að hjálpa mér með afmælistertuna.... mamma mín er algjör snillingur eins og sést á þessari mynd:Fótboltaæfing á sunnudagsmorgnum. Þarf augljóslega að redda KA búning á barnið!
Fórum með Elvar á Minjasafnið þar sem við kynntum fyrir honum meðal annars fornleyfauppgröft á Gásum... eru myndir bæði af mér og Óla á safninu, ekkert merki um að maður sé gamall.miðvikudagur
Keiluferð
Fórum með Jóhönnu og Nonna og afmeyjuðum keiluhöllina um dagin... á leiðinni niðureftir kom Óli með yfirlýsingu að hann vildi alls ekki vera með mér í liði! Jæja, mér var alveg sama um það en þegar við komum á svæðið vildi enginn vera með mér í liði þannig að það var haldin einstaklingskeppni.
Jóhanna byrjaði að predika yfir okkur að hún væri ekkert spes í keilu og kynni í rauninni voðalega lítið. Ég var ekkert lítið ánægð að heyra það og var sannfærð um að þetta yrði jafn og skemmtilegur leikur, sérstaklega þar sem Nonni þrumaði því yfir okkur að hann hefði bara farið blind fullur í keilu og væri ekki líklegur til stórafreka. Þannig að ég var bara nokkuð grobbin með mig þegar ég tróð mér í keiluskóna og horfði á þegar Jóhanna byrjaði leikinn.... fella!!!!
Svona var þetta svo allan tímann.... ég náði að hanga inní leiknum svona fyrstu 4 skotin mín en svo var þetta algjörlega dautt hvað mig varðar á meðan allir hinir tóku hverja felluna á fætur annarri og sýndu flotta keilutakta.... andskotans lygarar öll saman!!
Leikurinn var samt stórskemmtilegur, Nonni vann þetta og var ekki nema 150 stigum fyrir ofan mig og ég lærði það að trúa ekki neinu sem Jóhanna og Nonni segja ;-)

Leigubílasögur
Ég flakka full mikið um Reykjavíkurborg í leigubílum, hef reyndar fengið að kynnast hinum ýmsu bílstjórum á þessu brölti mínu og held ég að ég get fullyrt að þeir eru allir meira eða minna eitthvað skrýtnir. Svei mér þá ef þeir líta ekki flestir út eins og semi-mongólítar. Sumir eru nú reyndar ekkert að nenna að spjalla við mann og mér finnst það lang best en svo eru það þessir spjallóðu sem fá umfjöllun um sig á síðum sem þessari.

- Var á leið til Gautaborgar um daginn og tók leigubíl frá flugvellinum og á hótelið mitt (er svo heppin að búa útá landi þannig að ég þarf að gista eina nótt í Reykjavík.... ennþá allavega). Jæja, eitthvað var kauða heitt í hamsi af því að uppúr þurru byrjar hann að tala um fólk sem fær dagpeninga, gistir á hótelum og fer til útlanda á kostnað fyrirtækisins.... algveg nákvæmlega það sem ég var að gera í þessari ferð, fara á sýningu í Svíþjóð og á fullum dagpeningum. Hann lét svoleiðis dæluna ganga og var svo yfir sig hneykslaður að ég var að hugsa um að stökkva út á ferð. Loksin spyr hann mig hvar ég vinni og hvað ég sé að gera í Reykjavík.... sagði honum bara að ég væri hjúkka og á leið í heimsókn til bróður míns í Svíþjóð. Honum leist svo vel á mig að hann lét mig fá símanúmerið sitt sem ég misnotaði um morguninn og fékk hann til að skutla mér á BSÍ, þegar ég svo borgaði fyrir herlegheitin skoðaði hann kortið mitt, horfði á mig með ógeðisglott í augunum og sagði: Katrín, hún klikkar ekki!!
- jæja, einn gamall kall. Greinilega eitthvað langt síðan hann hefur farið út fyrir Mosfellsbæ ef hann hefur þá einhverntíman gert það. Ávarpaði mig alltaf sem "þið landsbyggðarfólkið" og talaði við mig eins og ég væri 86 ára gömul kona að koma í kaupstaðarferð. "Það er ekki Bónus fyrir norðan er það? Nú, og kannski Nettó líka? jahérna, eruð þið ekki háð okkur hér í Reykjavík? Er það ekki, er allt til alls þarna útá landi?"
- Annar ávarpaði mig sem skíðadrottninguna þar sem ég er frá Akureyri, hjóta allir að vera góðir á skíðum ef þeir búa fyrir norðan. Sjálfur var hann ættaður frá Siglufirði, á hús þar sem dóttir hans notar með honum, hann á 2 dætur, önnur var að biðja hann um að setja sumardekkin undir bílinn, það er nóg að gera hjá honum að sinna dætrunum, já og afabörnunum, hann á 7 barnabörn, þau eru öll góð á skíðum.... jæja, ég er komin á áfanga stað og erfitt að fá manninn til að hætta að tala.....
- Hahaha, ertu frá AKureyri... AKureyri.... talið þið ekki öll svona þarna útá landi??

föstudagur
Facebook fréttir
Núna er ég búin að sanka að mér nokkrum “vinum” á vefnum og get farið að njósna um fólk. Ég er ekki enn búin að sjá tilganginn með þessu forriti og efast um að ég muni nokkurntíman gera það. Maður gengur kaupum og sölum á netinu, myndir af manni eru keyptar af einhverjum Himanshu á Indlandi og boðskort í allskonar klúbba hrúgast inní pósthólfið mitt... veit í rauninni ekki alveg hvað mér finnst um þetta allsaman.
Að öðru... Í dag er það hún Lóa mín sem skríður hægt og rólega nær 30 árunum. Lóa er keppnismanneskja mikil og sést það kannski best á því að hún þrjóskast enn við að drita niður einni og einni færslu á bloggið sitt bara til að tapa ekki í bloggkeppninni ógurlegu sem hófst fyrir næstum því 5 árum síðan.... þá vorum við sko ungar og vitlausar. Lóa á næturvöktum á geðdeildinni og ég hringdi reglulega í hana til að leyfa henni að upplifa djammið beint í æð. Vorum svona létt grillaðar í hausnum.
Svo er hún Lóa líka gift, sú eina í vinkonuhópnum sem hefur gengið uppað altarinu en ég hef fulla trú á að nú fari hinar að hennar ráðum.... allavega hefur Lóa sýnt að það er alveg hættulaust að játast einum manni.
Til hamingju með daginn elsku Lóa mín :-*

Til hamingju með daginn elsku Lóa mín :-* miðvikudagur
Á leið til glötunar
Æi mér er ekki viðbjargandi.... var að opna svona Facebook rugl (bara forvitni og ekkert annað!). Skráði mig inn og bað Bjössa um að vera vinur minn og þar með var ég komin með ógeð á þessu og er að reyna að finna út hvernig ég get eytt þessu helvítis drasli aftur... þetta er alveg jafn glatað og myspace.
En jæja, ætli apríl líði ekki alveg jafn hratt og mars... planaður póker um helgina, matarboð hjá Hörpu helgina þar á eftir, 5 ára afmælisveisla helgina eftir það og svo Barcelona! Skal alveg viðurkenna það að ég er með stresshnút í maganum yfir afmæliskökunni. Held að besta ráðið sé að fá mömmu í heimsókn, það getur ekki klikkað. Svo verða grillaðar pylsur og keypt litil kók í gleri... mikil stemmning í því!
Smá saga af guttanum svona í lokin... kræst þetta er farið að hljóma eins og barnalandssíða!!
Fyrir nokkrum vikum síðan komu stelpurnar og makar í smá pizzu og bjór til okkar.... ég fór og sótti Hörpu og Óla þar sem þau eiga ekki bíl. Elvar var agalega hissa á því og spurði frekar undrandi af hverju þau ættu ekki bíl. Við útskýrðum fyrir honum að það kostaði mikla peninga að eiga bíl og svo eru ekki allir sem þurfa á svoleiðis að halda. Drengurinn vorkenndi Hörpu og Óla svo mikið að hann sagðist ætla að gefa þeim pening úr sparibauknum sínum til að hjálpa þeim og á meðan ég var að sækja þau hjónin klifraði Elvar uppá bekk og bað pabba sinn vinsamlegast um að hjálpa sér að ná í sparibaukinn... algjört eðal þessi drengur!

Fleiri afmæli
Ég er svo heppin að eiga 2 yndisleg bræðrabörn og á hann Vilhjálmur Bjarni tveggja ára afmæli í dag. Hann er ekki enn búinn að læra að lesa en ég treysti á að Gísli lesi þetta fyrir hann... innilega til hamingju með afmælið litli kall :-*
Hér er ég með litla gullinu á skírnardaginn :-*
Annars var helgin alveg stórgóð... sötraði bjór með stelpunum mínum á föstudagskvöldið á meðan við spiluðum póker og kjöftuðum útí eitt. Ég og ástmaðurinn vorum svo bara flott á því á laugardaginn... tékkuðum á stemmaranum uppí fjalli, fórum út að borða og svo í leikhús. Tókum svo góðan bíltúr eitthvert lengst inní fjörð í gær og enduðum með pizzu í fanginu.
Það er klipping á morgun... kominn tími á róttækar breytingar!
föstudagur
This is for you Þóra mín!!!
Elsku besti Ástralíufélaginn minn á afmæli á morgun... man þegar ég hitti hana fyrst í bankanum og ég hélt að hún væri allavega svona 3 árum eldri en ég en litla skinnið mun aldrei ná mér í aldri! Við smullum svoleiðis saman og hefði ég ekki geta verið með betri félaga í ævintýrinu hinumegin á hnettinum.

Það styttist í reunoinið... fjúfff, bara 6 ár :-)
Vona að Þóra verði aðeins rólegri í appelsínusafanum á afmælisdaginn en um áramótin 2004-2005.....
Óvenju ekki sveittar en í staðin bara vel brunnar og út bitnar eftir moskítóflugur.... On top of the world að gera okkur klárar að bruna niður brekkuna á sandbrettum.....
Svei mér þá, þetta gæti verið brúðkaupsmynd af okkur... bíðum eftir að geta skálað í kampavíninu. Þvílík hamingja!
Súkkulaðibrúnar og sætar að skála í XXXX Gold.... þarna er allt ódýra súkkulaðiði farið að taka sér bólfestu á líkamanum mínum!
Tókum nokkur lyftu- flipp. Bjuggum á 32. hæð og eyddum því dágóðum tíma í lyftunni á hverjum degi og til að stytta okkur stundir drógum við upp myndavélina. Þegar þessi mynd var tekin fundum við að lytan var að hægja á sér til að hleypa fleira fólki inn. Ég er við það að fríka út á meðan Þóra heldur ró sinni.
Það var ekki tekið út með sældinni að troðast í þennan galla en góð pósa... settum svo á okkur froskalappir og æddum útí vatn og snorkuðum í kringum gamalt skip og gáfum fiskunum brauð. Gædinn okkar var ekkert lítið ánægður með íslensku skemmtilegu stelpurnar.... fannst við samt kannski full klikkaðar.

Það styttist í reunoinið... fjúfff, bara 6 ár :-)
Vona að Þóra verði aðeins rólegri í appelsínusafanum á afmælisdaginn en um áramótin 2004-2005.....
Óvenju ekki sveittar en í staðin bara vel brunnar og út bitnar eftir moskítóflugur.... On top of the world að gera okkur klárar að bruna niður brekkuna á sandbrettum.....
Súkkulaðibrúnar og sætar að skála í XXXX Gold.... þarna er allt ódýra súkkulaðiði farið að taka sér bólfestu á líkamanum mínum!
Tókum nokkur lyftu- flipp. Bjuggum á 32. hæð og eyddum því dágóðum tíma í lyftunni á hverjum degi og til að stytta okkur stundir drógum við upp myndavélina. Þegar þessi mynd var tekin fundum við að lytan var að hægja á sér til að hleypa fleira fólki inn. Ég er við það að fríka út á meðan Þóra heldur ró sinni.
Það var ekki tekið út með sældinni að troðast í þennan galla en góð pósa... settum svo á okkur froskalappir og æddum útí vatn og snorkuðum í kringum gamalt skip og gáfum fiskunum brauð. Gædinn okkar var ekkert lítið ánægður með íslensku skemmtilegu stelpurnar.... fannst við samt kannski full klikkaðar.Ég eeeellllllsssssskka þig :-*
miðvikudagur
Alveg merkilegt
Ég er svo greinilega dóttir föður míns.... það er stór hópur af fólki að labba í gegnum tollin og ég er sú eina sem er pikkuð út og vinsamlegast beðin um að sýna þeim í töskuna mína.... held að ég setji upp sama skítaglottið og pabbi þegar ég labba í gegn!
Katrín Harðardóttir Blöndal Blomquist Jacobssen!!
Katrín Harðardóttir Blöndal Blomquist Jacobssen!!