þriðjudagur
ertu á túr?
Stórgóð ferð að baki, Bjössi er svo mikill snilldar gestgjafi að annað eins er vandfundið og skemmtum við okkur konunglega. Íbúðin hans er á flottasta stað í borginni og útsýnið alveg stórkostlegt. Alveg ástæðulaust að vera með gardínur þar sem gluggarnir eru svo hátt uppi að þær skemma bara útsýnið..... var því vaknað á hverjum morgni við fuglasöng og sólina sem blindaði mann í augun. Held svei mér þá að Bjössi hafi vaknað á hverjum morgni kl.6 og beðið eftir að klukkan hringdi klukkan 8 til að geta stokkið á fætur og sungið fyrir mig allskonar sólarsöngva.... ansi hressandi morgunstund.
Við borðuðum mikið af góðum mat, fórum á geggjað flottan bar á 23. hæð á hóteli og drukkum kampavínskokteila í gluggakistunni.... græt mig enn í svefn að hafa gleymt myndavélinni.
Sænsku vinir Bjössa komu á föstudagskvöldið auk Begga og Jónsa og var búið að fylla ísskápinn af öllum ódýrasta bjórnum í Svíþjóð. Að sjálfsögðu voru þeir allir klæddir í þröngar hvítar gallabuxur, í Lacoste bolum og með peysuna um axlirnar.... eða ekki!
Sýningin var svona allt í lagi, náði að lauma Bjössa inn sem ferðamálafrömuð frá Ytra- Sandgerði, hvað sem það nú er. Hann náði að redda sér fullt af upplýsingum um Austur- Evrópu... þeir lögðu af stað á sunnudaginn, tóku felgurnar af bílnum og fylltu hann af allskonar verkfærum, köðlum, teipi og öðrum nauðsynjum sem ferðamenn í Hvíta Rússlandi þurfa að hafa með sér.
Ég ræsti svo bara nýja fína ipodinn minn og rölti um Gautaborg í klassa veðri um helgina.... já Óla fannst ég heldur hallærisleg að vera alltaf með geislaspilarann á lofti og gaf mér því þennan pínulitla ipod, svo mikið yndi.
Það er alveg spurning um að skella sér í helgarferð til Sveitta í sumar, hann keypti meira að segja dýnu og kodda á meðan ég var hjá honum!!
Eftir langt ferðalag komst ég loksins til Akureyrar í gærkvöldi og þá var ekki amalegt að fá litlar hendur utanum hálsinn og heyra hvað stubburinn saknaði mín mikið.....
Við borðuðum mikið af góðum mat, fórum á geggjað flottan bar á 23. hæð á hóteli og drukkum kampavínskokteila í gluggakistunni.... græt mig enn í svefn að hafa gleymt myndavélinni.
Sænsku vinir Bjössa komu á föstudagskvöldið auk Begga og Jónsa og var búið að fylla ísskápinn af öllum ódýrasta bjórnum í Svíþjóð. Að sjálfsögðu voru þeir allir klæddir í þröngar hvítar gallabuxur, í Lacoste bolum og með peysuna um axlirnar.... eða ekki!
Sýningin var svona allt í lagi, náði að lauma Bjössa inn sem ferðamálafrömuð frá Ytra- Sandgerði, hvað sem það nú er. Hann náði að redda sér fullt af upplýsingum um Austur- Evrópu... þeir lögðu af stað á sunnudaginn, tóku felgurnar af bílnum og fylltu hann af allskonar verkfærum, köðlum, teipi og öðrum nauðsynjum sem ferðamenn í Hvíta Rússlandi þurfa að hafa með sér.Ég ræsti svo bara nýja fína ipodinn minn og rölti um Gautaborg í klassa veðri um helgina.... já Óla fannst ég heldur hallærisleg að vera alltaf með geislaspilarann á lofti og gaf mér því þennan pínulitla ipod, svo mikið yndi.