<$BlogRSDUrl$>

mánudagur

Köku-kaós 

Rétt eftir jólin keypti ég alveg ferlega flott spiderman kökuform... kröfurnar eru orðnar svo miklar að það verður að vera spiderman kaka á fimm ára afmælinu í apríl. Þar sem ég er ekki þekkt fyrir föndurhæfileika ákvað ég að best væri að baka eina prufu köku. Ég og Elvar ákváðum því einn laugardag að baka spiderman köku.... fjúfff, ekki lítið spennandi.

Þetta gekk svona nokkuð áfallalaust fyrir sig. Ég átti þó í nokkrum erfiðleikum með að muna hvað ég var búin að setja í degið og hvað ekki þar sem barnið þarf að smakka gjörsamlega allt hráefni sem til er og hræra í öllu og pota í allt.... vildi til dæmis smakka kakóið og var ekkert að spara smakkið heldur tók fulla matskeið og tróð uppí sig. Bökunarkakó er alveg það þurrasta og ógeðslegast sem til er þannig að Elvar byrjaði að hósta þessu öllu útúr sér og fannst þetta sennilega það viðbjóðslegasta sem hann hefur smakkað.... og auðvitað átti ég í erfiðleikum með að hjálpa honum af því að ég hló svo mikið.... var alveg drep!
Jæja, við náðum þó að halda áfram og sulluðum einhverju saman í deig. Barnið gæti án efa lifað á hráu kökudeigi og hélt fast um skálina á meðan hann mokaði deiginu uppí sig.... ég kom að sjálfsögðu með allskonar ormasögur til að hræða hann eins og gert var við mig þegar ég var að stelast í hrátt deig. Jæja, skelltum þessu í fallega spidermanformið og hentum þessu inní ofn.... á meðan við biðum sleiktum við sleifar og skálar og sluppum þannig við að vaska upp. Yesss... kakan loksins tilbúin og leit bara nokkuð vel út. En jesús þetta var sko bara byrjunin.... kökuskreyting er sennilega það alversta sem ég hef gert á ævinni.

Kakan var skreytt daginn eftir og voru þá allir mögulegir og ómögulegir litir dregnir fram... svartur, blár, rauður og hvítur. Elvar byrjar á því að fikta aðeins í bláa litnum og endaði nánast með alla hendina ofní krukkunni.... það er ekkert grín að ná þessu af, þvílíkt eitur maður. Jæja, það er nú alltaf gaman að fikta og fylgir bara bakstrinum. Byrjuðum á því að setja ljósblátt deig yfir alla kökuna, augun teiknuð hvít, meira blátt og svona rugl.... svo kom það versta, svartar rendur út um allt. Þetta var ógeðslegt og alveg var ég laus við að hafa tilfinningu fyrir hvernig þetta ætti að vera.... uppfylling með rauðum lit inní alla þessa svörtu kassa.... þvílíkt kaós!!! Svei mér þá, þetta var einhver sú ljótasta kaka sem ég hef nokkurntíman á ævinni séð.




En þessi börn eru svo yndisleg, þegar við vorum búin að skreyta þetta afskræmda spiderman afkvæmi sagði Elvar að þetta væri sko flott kaka og alveg eins og Spiderman á að vera :-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?