<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur

Ræktun 

Sumir rækta fíkniefni heima hjá sér og aðrir rækta grænmeti já eða hamstra, hunda og svoleiðis. Persónulega þarf ég alltaf að vera svolítið öðruvísi og er með þessa fínu rækturnarstöð á hökunni á mér.... mér til mikillar gleði! Þetta er ógeðslegt.
Það eru höfuðstöðvar, sem eru alveg það skelfilegasta sem ég hef séð og svo nokkur lítil útibú. Agalega heppin að fá þetta svona í andlitið, háöldruð. Reyni að sannfæra sjálfamig að þetta séu unglingabólurnar sem ákváðu að láta ekki sjá sig á unglingsárunum, er þá greinilega svona seinþroska! En ég veit alveg að þetta eru nammi- og sykurbólur, enda komu þessi vel völdu 10 kíló ekki af ástæðulausu.... svo er maður svo myndarlegur með þetta í andlitinu. Húrra fyrir því!!
Jæja, á maður ekki að poppa og horfa á landsleikinn í kvöld... ég og ræktunarstöðin (já sveimér þá ég held að þetta sé lifandi).

This page is powered by Blogger. Isn't yours?