miðvikudagur
2007
Jæja, nýja árið er mætt á svæðið, þetta eru að sjálfsögðu tímamót og alltaf gaman að rifja upp gamla árið.
- Byrjaði að sjálfsögðu árið 2007 með yfirliði og það boðar greinilega bara gott þar sem restin af árinu var mjög gott.
- Á árinu eignuðust Birna, Karen og Halla frænka yndisleg börn.
- Við fórum nokkrum sinnum í leikhús og að sjálfsögðu eigum við árskort. Fór líka á frábæra tónleika með Ný Dönsk í leikhúsinu.
- Páskunum eyddum við í New York, frábær ferð í skíta kulda :-)
- Ég fór með mömmu til Californiu og þar tók Bjössi á móti okkur.... algjör klassa ferð. Flaug síðan frá LA til Denver og hitti Óla minn.
- Fór nokkrum sinnum til Reykjavíkur þetta árið en rómóferðin í október stendur uppúr.
- Ég og Óli vorum dugleg að rúnta um Norðurlandið og uppá hálendið. Við ætlum að vera enn duglegri næsta sumar.
- Haldið var ættarmót um versló sem hefði ekki geta heppnast betur!
- Við keyptum okkur nýtt rúm og nýjan sófa.... íbúðin er loksins orðin alveg ægilega kósí.
- Við vinkonurnar hittumst eina helgi í sumarbústað ásamt mökum og börnum. Ég og Eygló erum að skipuleggja eðal hitting sem verður á Snæfellsnesinu í sumar!
- Ég, Óli og Elvar Máni fórum í fjölskylduferð til Mallorca í september.
- Ég þyngdist um 10 kíló á þessu ári.... gott Kata.
- Fór í þrjár vinnuferðir, tvisvar til Köben og einusinni til Færeyja.
- Svo þetta klassíska; fórum reglulega í sund, mjög oft í Brynju, út að hjóla og labba og urðum húkkt á póker... svo er auðvitað brjálað að gera við að vera ástfangin og eiga svona góða stráka.