<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur

Fíflagangur 

Hvernig væri að fullkomna þennan helvítis fíbblagang sem er í gangi þarna í Reykjavík og kjósa Ástþór sem forseta.... besta land í heimi??

Ræktun 

Sumir rækta fíkniefni heima hjá sér og aðrir rækta grænmeti já eða hamstra, hunda og svoleiðis. Persónulega þarf ég alltaf að vera svolítið öðruvísi og er með þessa fínu rækturnarstöð á hökunni á mér.... mér til mikillar gleði! Þetta er ógeðslegt.
Það eru höfuðstöðvar, sem eru alveg það skelfilegasta sem ég hef séð og svo nokkur lítil útibú. Agalega heppin að fá þetta svona í andlitið, háöldruð. Reyni að sannfæra sjálfamig að þetta séu unglingabólurnar sem ákváðu að láta ekki sjá sig á unglingsárunum, er þá greinilega svona seinþroska! En ég veit alveg að þetta eru nammi- og sykurbólur, enda komu þessi vel völdu 10 kíló ekki af ástæðulausu.... svo er maður svo myndarlegur með þetta í andlitinu. Húrra fyrir því!!
Jæja, á maður ekki að poppa og horfa á landsleikinn í kvöld... ég og ræktunarstöðin (já sveimér þá ég held að þetta sé lifandi).

mánudagur

Ekki alveg í lagi 

Ég gaf Óla utanlandsferð í jólagjöf. Gríðarlega spennandi ferð með siglingu og sveitasælu! Ég held hins vegar að það sé ólöglegt samráð í gangi á milli flugfélaganna um að hleypa okkur ekki úr landi. Í byrjun janúar kom neflilega í ljós að búið er að fella niður bæði flugin okkar og það kostar hálfa milljón að fljúga með hinu flugfélaginu... eðlilegt?

Alveg spurning um að gefa honum bara miða á tónleika með dúettnum Þú og Ég... Helga Möller og blindi dópistinn klikka varla!

miðvikudagur

2007 

Jæja, nýja árið er mætt á svæðið, þetta eru að sjálfsögðu tímamót og alltaf gaman að rifja upp gamla árið.


This page is powered by Blogger. Isn't yours?