<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

GSM 

Hversu ómissandi getur fólk verið?
Hef verið að velta þessum gsm símum mikið fyrir mér.... Fólk fer á kaffihús og geymir símann uppá borðinu á meðan af því að það gæti misst af því ef einhver hringir eða sendir sms, síminn fer með í búðina og ef hann hringir þá skiptir ekkert annað máli, síminn fer með í bíóið, á tónleika, í leikhús, bankann, göngutúrinn, út að borða... það er sama hvað manneskjan gerir, síminn fylgir alltaf með.... hann fær svo að sofa á náttborðinu á nóttunni!!
Væri það alveg hrikalegt ef það væri ekki hægt að ná af manni gjörsamlega hvar sem maður er og hvað sem maður er að gera? Er alveg vonlaust að vera með missed call á símanum eftir að hafa stokkið inní búð að versla í matinn?

Síminn minn er annað hvort heima eða í bílnum og ég svara í hann þegar ég nenni... læt ekki eitthvað svona apparat stjórna mér!

Hey..... gleðilegt ár :-*

This page is powered by Blogger. Isn't yours?