<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

GSM 

Hversu ómissandi getur fólk verið?
Hef verið að velta þessum gsm símum mikið fyrir mér.... Fólk fer á kaffihús og geymir símann uppá borðinu á meðan af því að það gæti misst af því ef einhver hringir eða sendir sms, síminn fer með í búðina og ef hann hringir þá skiptir ekkert annað máli, síminn fer með í bíóið, á tónleika, í leikhús, bankann, göngutúrinn, út að borða... það er sama hvað manneskjan gerir, síminn fylgir alltaf með.... hann fær svo að sofa á náttborðinu á nóttunni!!
Væri það alveg hrikalegt ef það væri ekki hægt að ná af manni gjörsamlega hvar sem maður er og hvað sem maður er að gera? Er alveg vonlaust að vera með missed call á símanum eftir að hafa stokkið inní búð að versla í matinn?

Síminn minn er annað hvort heima eða í bílnum og ég svara í hann þegar ég nenni... læt ekki eitthvað svona apparat stjórna mér!

Hey..... gleðilegt ár :-*

Jólakortið 








þriðjudagur

Jólagjafir 

Í nóvember var ég búin að ákveða hvað ég ætlaði að gefa öllum í jólagjöf og meira að segja búin að pakka sumum inn... hefur ekki gerst í sögu jólagjafakaupa minna (gjöfin hans Óla er meira að segja löngu klár). Er ferlega hressandi og hef ég alveg komist hjá því að fara á Glerártorg og horfa á miðaldra fólk dansa gömlu dansana og fylgjast með bóndafólkinu hamstra jólaöli.
Hef líka ákveðið að þetta ár verið síðast árið sem ég gef svona mikið af jólagjöfum.... er bara komið útí eitthvað rugl þetta gjafaæði!

.... fékk svo staðfestingu á því í vinnunni í gær að ég hef lært ansi margt af sölumanni dauðans frá því í bankanum. Náði að fá gaur til að breyta skoðunum sínum alveg í andhverfu sína og borga allskonar reikninga sem hann hafði alls ekki hugsað sér að borga.... snilldar vel gert :-)

mánudagur

Matur 

Skelltum okkur á jólahlaðborð á föstudagskvöldið..... og þjónninn okkar var fullur!!!!

miðvikudagur

Jólastúss 

"Þá læt ég hann Bjössa bróður minn berja þig í klessu asninn þinn...." Alveg með eindæmum hvað þessi barnalög eru skemmtileg ;-) Ég syng þetta líka við hin ýmsu tækifæri, enda reddar Bjössi mér hvar sem er!!


Annars er allt gott á kantinum. Afrekaði það í fyrsta skipti að baka smákökur fyrir jólin... jammms, 6 plötur af piparkökum og hafa karlmennirnir á heimilinu ákveðið að best sé bara að klára þetta alltsaman fyrir jól.
Er svo búin að föndra nokkur jólakort með litla stubb.... ekkert smá gaman að vera 4 ára og vanda sig í botn að skrifa stafina. Þetta tekur þó á þolinmæðina og því ekki gott að skrifa nema 2 kort á dag....

Búin að fara á eitt jólahlaðborð og það var algjör snilld, fjúffff hvað ég borðaði mikið!! Á föstudaginn er svo annað hlaðborð, er búin að halda átinu vel við þannig að þetta ætti ekki að vera neitt vandamál. Það er ekki gefins að fara á svona hlaðborð og því nauðsynlegt að borða fyrir allan peninginn.

Um síðustu helgi skelltum við Elvar okkur með mömmu og pabba í Dimmuborgir til að heilsa aðeins uppá jólasveinana. Um að gera að sjarma aðeins fyrir þeim, tryggja að maður fái eitthvað fallegt í skóinn. Sveinkarnir voru hinir hressustu og ég er ekki frá því að við fullorðna fólkið höfum skemmt okkur jafn vel og barnið.



Það búið að vera alveg ógeðslega kalt hérna og svo líka bara nokkuð heitt... gluggarnir á heimilinu eru ekki alveg að fíla þetta og mætti halda að þeir grétu örlög sín þar sem það myndast svo mikill raki að það er ekki eðlilegt. En maður reddar þessu eins og öllu öðru og ég er nánst farin að sofa með tuskuna í fanginu.
Þessum geðsveiflum í veðrinu fylgja nokkrir kvillar og er desember pestin mætt í bæinn sem aldrei fyrr.... ég er með svona mini útgáfu sem samanstendur af stífluðum haus, gríðarlegri þreytu, miklum vökva í augunum og hori sem rennur óhindrað niður og skilur þar af leiðandi eftir tvær rauðar rendur fyrir neðan nasirnar.... þetta þekkja nú allir! Er þar með svona temmilega tussuleg og ruslast í gegnum vinnudaginn.
Jólagjafirnar já, þær tínast inní jólapappírinn hver af annarri. Er alveg merkilega á góðum tíma með þetta og mun væntanlega klára að pakka inn um helgina... sweet. Á laugardagskvöldið verður það svo hvítvínsglas og nokkur jólakort skrifuð.
Ætla að skella mér í jólageðveikina í Reykjavík 22. des og nota daginn í það að knúsa Höllu frænku og litla kútinn hennar, Konráð....
Held að ég geti ekki logið neinu fleiru að ykkur í bili.... enda er þetta orðið meira en gott!!
Ble ble

föstudagur

Jóla... gjöf 

Við búum við svo mikla græðgi að mér blöskrar... Mér finnst ekkert eðlilegt við það að börn eigi gjörsamlega allt og fái allt!! Vá hvað við höfum það gott og svo er maður að kvarta yfir því að fá “bara” fisk í matinn en ekki eitthvað betra!! Ég er svona sjálf, viðurkenni það alveg. Hef það alveg hrikalega gott. Mér finnst ég samt vera heppnust að eiga fríska fjölskyldu sem ég get leitað til hvenær sem er, það eru alls ekki allir svo heppnir.

Síðustu ár hefur mig langað alveg gríðarlega mikið til að láta eitthvað gott af mér leiða og í dag tók ég fyrsta skrefið og ákváðum við Óli að gerast styrktarforeldrar.... nú bíð ég bara spennt eftir að fá sendar upplýsingar um barnið sem við munum styrkja.

Finnst þetta vera lang besta jólagjöfin mín.....


This page is powered by Blogger. Isn't yours?