þriðjudagur
Tattooið mitt
Ég geri allt fyrir Óla, hvað sem er.... nema eitt! Ég mun aldrei nokkurntíman láta fjarlægja tattooið mitt.
Frá því að við byrjuðum saman hefur Óli tekið nett tuðkast annaðslagði um hvað honum finnst tattooið mitt ljótt, alltof stórt og vilji helst af öllu láta brenna það í burtu. Hefur alveg ægilegar áhyggjur af því að þessi ljóta mynd sem brennd er á ökklann á mér muni sjást í brúðkaupinu okkar, eða á árshátíðum og fleiri viðburðum sem við sækjum aldrei!
Eins yndilegur og þessi drengur er þá fer þetta í taugarnar á mér. Hann skilur svo engan vegin hvað þetta tattoo er.... fyrir mér er þetta ekki mynd af kengúru á ökklanum á mér. Þetta er svo miklu, miklu meira. Þetta er vinartákn, ódauðleg vinátta á milli mín og Þóru. Minjagripur um tíma sem við upplifðum saman. Til minnis um hvað ég þroskaðist mikið og lærði á ferðalagi mínu um Ástralíu. Hvað ég er ánægð með sjálfa mig að hafa flutt yfir hálfan hnöttin gjörsamlega grunlaus hvað ég væri að fara að gera þarna og svo margt fleira.
Þetta er ekki bara tattoo... ég mun aldrei aldrei láta fjarlægja minninguna af ökklanum á mér, hún skiptir mig of miklu máli!