þriðjudagur
Singing in the rain.
Fór í Singstar í B10 á föstudagskvöldið.... hafði þá ekki farið í þessa keppni síðan ég vann í bankanum og við hittumst reglulega til að sötra bjór og djamma. Þegar ég labbaði inní Brekkugötu glumdi Pink um allt hús og ég hélt að Harpa hefði misst sig og boðið hálfum bænum í partý... rölti inní stofu og fann þar Lóu og Hörpu gjörsamlega á öndverðu meiði með sitthvorn mækinn í hendinni, osta, snakk og rauðvín. Ég hrökk svo í gírinn og við sungum laaaaangt fram á nótt, ansi hressandi verð ég að segja :-)
Svo fer að koma desember og það er át mánuðurinn mikli... hefst strax 1. des með jólahlaðborði á KEA og svo borðað stanslaust þangað til árið klárast!!
... Hlakka til :-)
Svo fer að koma desember og það er át mánuðurinn mikli... hefst strax 1. des með jólahlaðborði á KEA og svo borðað stanslaust þangað til árið klárast!!
... Hlakka til :-)