<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur

Já halló!! 

"Heyrðu umbi, ég er á leiðinni norður og mig vantar kellingu"
Svona hófst samtal okkar Rögga í gærkvöldi!! Ég held sveimér þá að þetta gerist ekki mikið flottara... Var vakandi í alla nótt að fara yfir excel skjölin mín með upplýsingum um allar þær stúlkur sem eru á lausu og búa á Akureyrarsvæðinu! Úrvalið er nú ekki mikið (það er ekki hver sem er sem fær að sulla í Folanum).
Keppendurnir sem voru með í upphafi eru ekki líklegir til stórafreka þessa stundina (óléttur og fleira spennandi í gangi) þannig að ég þarf að róa á önnur mið og er mikil áskorun í gangi.

Byrja á því að flokka þær eftir hárlit, næst hæð, húmor, gáfum, þyngd, menntun, fjölskylduaðstæðum, fjárhagsstöðu.... þetta starf er ekkert grín!
Svo er alltaf gott að fá utanaðkomandi hint ;-)

Gott að vita til þess að fyrirtækið er ekki alveg dautt.....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?