miðvikudagur
The blog master
Fór að velta því fyrir mér um daginn af hverju í ósköpunum ég er að blogga. Man þegar ég stofnaði þessa síðu, þá var ég að vinna í bankanum og sá til þess að við hverja millifærslu kæmi 10% af upphæðinni inná minn reikning. Það var ferlega lítið annað að gera þetta sumarið og einn daginn ákvað ég að blogg væri örugglega eitthvað fyrir mig. Svo fór ég alveg á full swing í þessum skrifum mínum og stuttu seinna ákváðum Lóa og ég að gerast keppnisbloggarar og sú sem myndi endast lengur í blogginu yrði meistari.... við erum greinilega báðar jafn þrjóskar því enn erum við að, rúmlega 4 árum seinna!!
Lóa, við eigum enn eftri að ræða hvað lúserinn þarf að borga meistaranum ;-)
Svo er ég alveg að fara að komast í sólina og skemmtigarðana... en ég ætla að eyða deginum í dag í Varmahlíð og morgundeginum á Hvammstanga!!
Lóa, við eigum enn eftri að ræða hvað lúserinn þarf að borga meistaranum ;-)
Svo er ég alveg að fara að komast í sólina og skemmtigarðana... en ég ætla að eyða deginum í dag í Varmahlíð og morgundeginum á Hvammstanga!!föstudagur
Drykkjuveikur
Föroyar var rosa gott..... ég var bara ein í góður herbergi á fínt hótel. Dagarnir fóru í fundi og svo brennivínsdrykkju á kvöldin, lambakjöturinn var mukket góður. Föroyar eru fallegur staður og fólkurinn rólegur, ballurinn var fínn og bussurinn fullur.
Ohhh, ég er orðin svo alþjóðleg að ég kann ekki lengur íslensku ;-)
Ohhh, ég er orðin svo alþjóðleg að ég kann ekki lengur íslensku ;-)
Farin
September verður horfinn áður en ég veit af. Ég er að fara í vinnuferð til Færeyja á mánudaginn, vinn í viku en skelli mér svo til Mallorca í smá frí með strákunum mínum, daginn eftir að við komum aftur heim þarf ég að fara á einn fund í Kaupmannahöfn. Nóg að gera allavega og áður en ég veit af verð ég farin að baka einhverjar smákökutegundir fyrir jólin.
En jæja, ætla að klára þennan vinnudag og skella mér svo heim í heitt freyðibað með hvítvínsglas í hönd ;-)
En jæja, ætla að klára þennan vinnudag og skella mér svo heim í heitt freyðibað með hvítvínsglas í hönd ;-)
mánudagur
On Top of Your World

B10 is back to live... alveg ótrúlegt en satt en hún Harpa er aftur flutt í þetta menningarlega húsnæði. Kíkti í heimsókn til hennar í gær og fékk smá nostralgíukast.... eigendurnir sem fluttu inn á eftir okkur breyttu anda þessa húss svo mikið, er búið að missa partýstimpilinn. Flottasta gestabók í heimi er horfin, búið að mála yfir hana með appelsínugulum lit... allar skær grænu hurðarnar eru orðnar hvítar.... Öll ummerki um Litla hraun eru horfin.... búið að taka til og mála kjallarann..... En svona er þetta, mennirnir breytast og húsin greinilega með. En gaman að Harpa skuli vera flutt aftur, á laugardaginn verður því tekin smá bjórdrykkja til að vígja pleisið.... aftur :-) Vantar samt svo mikið... alla karekterana sem settu svo mikið líf í íbúðina á sínum tíma....
