<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur

Sjallalala 

Ég gleymdi skyrinu mínu í morgun og hef þess vegna ekki borðað neinn morgunmat.... maginn er ekki alveg að gúddera það og lætur öllum illum látum. Hef sjaldan heyrt annað eins garnagaul. Við erum hérna tvær á skrifstofunni og gaulið í mér bergmálar um allt herbergið þannig að ég ákvað að gera mér upp mikið kvef.... hósta vel og mikið í hvert skipti sem garnirnar byrja að væla svo það heyrist ekki hvað ég er ógeðslega svöng. Veit samt ekki hvort það sé eitthvað skárra.... hóstandi einhverjum gervihósta allan daginn.

Svo er líka alveg spurning um að færa gamla rúmið úr stofunni og í einhverja geymslu.... eða jafnvel bara kaupa stærra húsnæði svo gamla rúmið komist fyrir :-)

miðvikudagur

Allt fyrir þig Gísli 

Nú er ekki aftur snúið, er orðin húkkt á póker. Skelltum okkur í brúðkaup um síðustu helgi og fílaði ég mig gjörsamlega í botn þar sem ég þekkti ekki nokkurn einasta mann fyrir utan Óla, Jón og Gunnu (vá, hljómar eins og nöfn sem ég hef búið til).... allavega, eftri að við 4 vorum búin að vera mjög huggulegt út að borða þarna í brúðkaupinu og hlusta á helling af skemmtiatriðum þá skelltum við okkur í Smárahlíðina og spiluðum póker fram á nótt.... Óli var orðinn svo æstur í lokin að ég var farin að hafa áhyggjur af nýja rúminu okkar, maður veit aldrei hvað þessum mönnum dettur í hug að leggja undir. Æsingurinn var svo mikill að við erum búin að melda okkur aftur í pókerinn á föstudagskvöldið, vonum bara að við komum ekki einum bíl fátækari til baka.

Akureyrarvaka á laugardaginn.... Sammi frændi ætlar að sjá til þess að Akureyringar skemmti sér vel og ég er ekki frá því að við hjónin skellum okkur á smá pöbbarölt (munum að sjálfsögðu bara drekka kakó!!). Svo ætlar Addi að taka sannan Íslending á þetta og flytja til Danmerkur á næstu dögum, hann klikkar ekki á kveðjupartýi. Veit nú ekki hvort ég treysti mér í þá samkomu, síðast þegar ég mætti í partý til Adda endaði það mér því að hann baðaði sig uppúr nýmjólk í heitapottinum.... það var reyndar alveg ógeðslega fyndið, ég neita því ekki ;-)

En ég segi bara eins og Búdrýgindi gerðu hér um árið.... spilafíkill, ég er spilafíkill!!!

föstudagur

Mont mont 

Tölti með visakortið mitt inní Svefn og heilsu á mánudaginn og Hanna straujaði það fyrir tæplega 400.000 kall... helgin fer í það að prufa allar mögulegar og ómögulegar stellingar :-) Þetta bara gerist ekki betra.


þriðjudagur

Hrossa- og rolluréttir 

Takk Lóa og Birna fyrir skipulagið og þið hin öll fyrir samveruna :-*

föstudagur

Tíminn flýgur 

Það var fyrir ekki lengra en ári síðan að ég dröslaðist úr B10 og í vinnuna, heim í prinz polo og pepsí max og sötraði svo einhverja brennivínstegund með sambýlingnum yfir fótboltaspilinu um kvöldið.
Lífið er ekki lengi að breytast því ég kynntist alveg yndislegum strák 11. ágúst 2006.... Við höfum átt alveg frábærann tíma saman og ég er ekkert smá heppina að eiga ekki bara einn heldur tvo gollmola sem ég elska :-)


Takk fyrir æðislegt ár Óli minn :-*


Fleiri myndir frá árinu eru hér


fimmtudagur

Vinkonurnar 

Það er semsagt langþráður vinkonuhittingur um helgina.... ákveðið var að leyfa þessum mökum að dröslast með en einungis í þeim tilgangi að passa börnin á meðan við fyllibyttuvinkonurnar tökum almennilega á því. Lóa gaf meira að segja út þá yfirlýsingu að hún ætli að vera blind full alla helgina og fagnar því mjög að Jóhann skuli ekki drekka.
Svo að sjálfsögðu er fiskidagurinn á Dalvík um helgina og munum við mjög líklega ganga berserksgang um bryggjusvæðið með vodkapelann í annarri og fisk í hinni, góð blanda það!!

Hey, hver ætlar að sýna á sér tippið í þessari sumarbústaðarferð fyrst Grjóni verður ekki á svæðinu??

þriðjudagur

Algjör snilldar helgi 

Ég á svo mikla eðal fjölskyldu.... ættarmótið var ein mesta snilld í heimi og frábært að hitta allt liðið, gríðarleg stemmning í hópnum :-)


Stal þessari mynd af fjölskyldusíðunni.... (mæli með að skoða hana stækkaða!)

fimmtudagur

Blóm í pósti 

Þar sem Bjössi hefur ákveðið að tjá sig ekki um þetta mál þá bara verð ég setja smá klausu hingað inn.... Byrjum á spurningunni: hefur einhver fengið bréf heim um að pottablóm bíði þeirra á pósthúsinu???
Brjánsinn fékk svoleiðis bréf um daginn og að sjálfsögðu brunaði mamma niður á pósthús til að sækja varninginn. Agalega lítið og sætt blóm en engar upplýsingar um hver sendi það eða til hvers. Núna hinsvegar blómstar plantan sem aldrei fyrr í eldhúsglugganum heima og mamma hugsar betur um það en karlmennina á heimilinu. Svo er bara spurningin hvers konar planta þetta sé.... einhverjir sent fíkniefnaplöntu sem mamma hefur svo tekið ástfóstri við. Finnst þetta klárlega hið undarlegasta mál og velti mikið fyrir mér tilgangi þessarar plöntu.

Annað mál á dagskrá.... ættarmótið hefst á morgun og er ég að reyna að púsla saman einhverju skemtiatriði. Hef haft eitt og hálft ár til að sjóða eitthvað saman en ákvað að taka bara nettan skólafíling á þetta og fresta þessu fram á síðasta dag og er þess vegna alveg í skítnum núna!! Kem aftur heim á sunnudaginn og þá er planið að kíkja aðeins út á lífið.... en mig vantar partý!!!

Segi annars bara gleðilega versló og enda þetta á smá myndum frá því í fyrra..... ;-)












This page is powered by Blogger. Isn't yours?