<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur

Stuttur hálendissprettur 

Jessörí.... lögðum af stað seinnipartinn á laugardaginn og okkar fyrsta stopp, eftir alveg hrikalega mikinn hossuveg, var Dettifoss.


Ég ekkert smá ánægð að komast út úr bílnum þar sem ég hélt hreinlega að skvabbið mitt myndi hristast af mér og ekki viljum við það ;-)


Hérna er svo fossinn sjálfur... glæsilegur.

Það var vel blautt þarna hjá fossinum og eins gott að vera temmilega vel klæddur.


Þetta er svo Selfoss... mun fallegra en bærinn sjálfur!

Þurftum að keyra yfir nokkrar mis djúpar og öflugar ár.... upphækkaði Yarisinn okkar kannski ekki alveg besti fjallabíllinn þannig að Óli tók púlsinn á ánni áður en við létum vaða....

Fjárfestum í þessu líka glæsilega tjaldi áður en við héldum af stað.... ægilega kósí. Drottningin (a.k.a. Herðubreið) á að sjást þarna í baksýn en hún var með einhverja stæla alla ferðina og faldi sig því mest allan tímann....

Skýjin fylgdu okkur alla leið og náðu því fjöllin ekki að njóta sín. Þetta er hinsvegar tekið í Herðubreiðalindum þar sem við tjölduðum og veðrið var yndislegt þrátt fyrir skýjin :-)

Einnota grill er bara snilld og kjúklingabringurnar tókust alveg lygilega vel (smá sót en það er bara gott!)

Fórum svo í kvöldgöngu um Herðubreiðarlindir og fundum stað þar sem talið er að Fjalla Eyvindur hafi búið einn vetur.... Óli skellti sér í ham og tók nettan leikþátt fyrir mig.


Herðubreið sést ekki vegna skýja.... Skelltum því Óla bara þarna í staðin "Herðubreiður" (æi, þvílíkur húmor)


Nóg af hrauni og ekkert ofnæmi... alveg spurning um að byggja sér hús hérna!



Svo var það Öskjuvatn og Víti..... langur göngutúr til að komast að þessu. Þurftum að vaða elda og brennistein (eða allavega snjóskafla).



Alveg óþarfi að vaða yfir þennan poll....
Algjör snilld að fara í hálendisferð. Útsýnið hefði mátt vera betra, en við erum sátt :-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?