mánudagur
Allt fyrir súkkulaðið
Fékk mér prins polo í gær og var að labba að sófanum þegar mér finnst eins og einn súkkulaðibiti hefði dottið af kexinu mínu.... beygði mig niður til að sækja bitann og að sjálfsögðu má ekkert fara til spillis þannig að ég setti hann uppí mig. Fann strax að þetta var svo sannarlega ekki súkkulaði þannig að ég tók það út úr munninum aftur..... þetta var fluga!!!