föstudagur
Allt á fullri ferð
Veit ekki alveg hvað er í gangi með okkur hraustmennin í Drekagili en við ætlum að fara í algjöran killer göngutúr í kvöld..... held að það sé best að taka til súrefniskútinn og nálarnar svo við getum verið með næringu beint í æð. Hjólastólar og göngugrindur væru einnig vænlegur kostur en er of mikið mál að dröslast með það alltsaman.
Við erum líka í algjörri andstæðu við restina af landanum.... eltum ekki sólina heldur býst ég við að þurfa að tjalda í polli einhversstaðar uppá miðju hálendinu á laugardaginn. Alveg sannfærð um að það sé ekkert nema kósí; grilla í rigningunni, skríða svo rennblaut inní ískalt tjald og hálf frosna svefnpoka með horið rennandi í stíðum straum niður eftir bringunni.
Fínt að næla sér í smá lungnabólgu svona um mitt sumar. En ég hlakka til, alvöru útilegufílingur!!