<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

Það var þá... 

Ekkert gáfulegra en að fá sér einn góðan gúllara af vatni svona á meðan maður er í símanum. Þurfti að hringja í vinnunni í gær, pikkaði inn númerið, tók upp vatnsflöskuna og tók alveg ógeðslega stórann sopa.... en þá er svarað. Ég með svoleiðis troð fullan munninn af vatni og reyndi að keppast við að kyngja en að sjálfsögðu fór það annað hvort beint niður í lungun eða yfir símann, lyklaborðið og að lokum endaði restin sem slef á peysunni minni. Þarna hélt ég svo á tólinu, í einhverju viðbjóðslegu hóstakasti með gjörsamlega allt á floti í kringum mig og það endaði með því að ég þurfti að skella á manneskjuna!!
Guð minn góður, tók einhverjar 15 mínútur að jafna mig almennilega á þessu ógeði sem hefði getað orðið minn bani, segja upp í vinnunni, skipta um kennitölu og panta mér far til Uzbekistan....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?