föstudagur
Draumur...????
Eins og ég hef sagt svo oft áður þá er ég alveg einstaklega mörgum hæfileikum gædd... til dæmis að vita ekkert við hvern ég var að tala um ákveðna hluti eða hvort ég hafi yfirhöfuð tekið þátt í samtalinu, hvort það hafi ekki bara verið á milli tveggja aðila í sjónvarpinu.... eða það versta, að mig hafi dreymt samtalið.
Þannig standa málin að ég fór á bókasafnið í gær, ekkert meira kósí en að lesa góða bók undir teppi þegar veðrið leikur mann svona grátt. Fékk góðar viðtökur frá henni Lindu á safninu og var hún ekki lengi að redda mér bókinni sem ég var að leita að.... Svartur á leik eftir Stefán Mána.
Eftir gott spjall innan um bækurnar skellti ég mér heim til að hefja lesturinn. Á leiðinni fór ég að hugsa aðeins um þessa bók og við hvern ég hefði tala um hana. Einstaklingurinn sem ég talaði við hafði lesið þessa bók og þekkti höfundinn. Hefði meira að segja verið honum innan handar við að skrifa bókina þar sem þessi einstaklingur var í frekar miklu rugli á þessum tíma og væri stór hluti bókarinnar byggður á honum og hans lífsstíl á þessum tíma. Hann minntist meira að segja á að þegar talað er í bókinni um fiðrildatattoo tengist það eitthvað mömmu hans og sé ein af þessum leyndu skilaboðum sem nóg er af í bókinni...
Þá er spurningin.... var viðtal við mann í sjónvarpinu um þessa bók? Var ég í alvörunni að tala við einhvern um þessa bók og er þetta allt satt? Eða er ég svona hrikalega berdreymin að mig er farið að dreyma smáatriði uppúr bókum.... Held að það sé best að halda áfram með bókina og leita eftir fiðrildatattooinu!!