<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

Draumur...???? 

Eins og ég hef sagt svo oft áður þá er ég alveg einstaklega mörgum hæfileikum gædd... til dæmis að vita ekkert við hvern ég var að tala um ákveðna hluti eða hvort ég hafi yfirhöfuð tekið þátt í samtalinu, hvort það hafi ekki bara verið á milli tveggja aðila í sjónvarpinu.... eða það versta, að mig hafi dreymt samtalið.
Þannig standa málin að ég fór á bókasafnið í gær, ekkert meira kósí en að lesa góða bók undir teppi þegar veðrið leikur mann svona grátt. Fékk góðar viðtökur frá henni Lindu á safninu og var hún ekki lengi að redda mér bókinni sem ég var að leita að.... Svartur á leik eftir Stefán Mána.
Eftir gott spjall innan um bækurnar skellti ég mér heim til að hefja lesturinn. Á leiðinni fór ég að hugsa aðeins um þessa bók og við hvern ég hefði tala um hana. Einstaklingurinn sem ég talaði við hafði lesið þessa bók og þekkti höfundinn. Hefði meira að segja verið honum innan handar við að skrifa bókina þar sem þessi einstaklingur var í frekar miklu rugli á þessum tíma og væri stór hluti bókarinnar byggður á honum og hans lífsstíl á þessum tíma. Hann minntist meira að segja á að þegar talað er í bókinni um fiðrildatattoo tengist það eitthvað mömmu hans og sé ein af þessum leyndu skilaboðum sem nóg er af í bókinni...

Þá er spurningin.... var viðtal við mann í sjónvarpinu um þessa bók? Var ég í alvörunni að tala við einhvern um þessa bók og er þetta allt satt? Eða er ég svona hrikalega berdreymin að mig er farið að dreyma smáatriði uppúr bókum.... Held að það sé best að halda áfram með bókina og leita eftir fiðrildatattooinu!!

miðvikudagur

Æi nei!! 

... og nú ætlar Sparisjóðurinn að auglýsa á síðunni hennar og borga henni fyrir þessa vitleysu!!
Er virkilega ekki hægt að eyða peningunum í eitthvað gáfulegra??

mánudagur

Commmmmon... 

Æi maður... eruð þið ekki að grínast með þetta blogg sem ólétta þulan á RÚV er að halda úti. Ógurlega vinsælt og líkt við þættina Sex and the City. Hef verið að kíkja á þetta blogg svona af og til og kræst hvað þetta er hallærislegt.... Ég fæ bara kjánahroll að lesa þetta.
Allar vinkonurnar heita einhverjum ægilegum nöfnum... það er hávaxna undurfagra vinkonan, það er vinkonan með skuldbindingarfóbíuna, það er hömlulausa og ævintýragjarna vinkonan og svo margt fleira. Svo eru það elskhugar þessara vinkvenna... það eru giftir menn, tungulipri maðurinn, fráskildi myndarlegi svæfingarlæknirinn, bakaradrengurinn, nemandinn, viðskiptafræðingurinn, læknirinn... just name it!!
Svo eru það þessar kynlífsathafnir sem hún lýsir á alveg skelfilega leiðinlegan hátt... virkilega óspennandi og alls engin rómantík eða erótík í gangi þarna.

Þegar ég les í gegnum þessar færslur hennar myndi ég halda að þessar ”vinkonur” væru allar saman virkilega lauslátar konur.... ekki skrýtið að íslenskar konur hafi druslustimpil á sér!!

.... já og eitt, þegar ég les yfir kommentin á síðunni hennar þá eru þetta allt einhverjir miðaldra kallar sem nærast á sögunum... ennþá sorglegra!!

föstudagur

Klósett 

Fór á klósettið í vinnunni um daginn. Eru tveir karlar á hæðinni hjá okkur sem eru vel virkir í klósettferðunum og það tekur því ekki að setja setuna niður á milli ferða. Mætti inní kompuna og tek eftir að það vantar klósettpappír... opna skápinn sem er beint á móti klósettinu og ætla að sækja rúllu. Rek mig þá í einhvern bala, hann dettur á moppu sem rekst í einhvern spreybrúsa og endar brúsinn á klósettpappírnum sem hentist beint ofaní klósettið.... æi frábært. Bretti bara upp ermina og óð með hendinni á eftir pappírnum....!!!

Góða helgi gott fólk :-)

þriðjudagur

Brainstorming 

Ég er orðin uppiskroppa með hugmyndir til að setja hingað inn…Ákvað því að gera mjög óformlega könnun og setti inn gamla færslu. Á greinilega diggan aðdáanda því ekki komst ég upp með þetta… Harpa með athyglina í lagi. Þarf greinilega að leggja hausinn í bleyti!!

Annars á Ólinn minn afmæli á morgun og að sjálfsögðu er ég ekki búin að finna neitt handa kauða í afmælisgjöf.... úfff, ég er svo mikil eðal kærasta :-)

föstudagur

Það var þá... 

Ekkert gáfulegra en að fá sér einn góðan gúllara af vatni svona á meðan maður er í símanum. Þurfti að hringja í vinnunni í gær, pikkaði inn númerið, tók upp vatnsflöskuna og tók alveg ógeðslega stórann sopa.... en þá er svarað. Ég með svoleiðis troð fullan munninn af vatni og reyndi að keppast við að kyngja en að sjálfsögðu fór það annað hvort beint niður í lungun eða yfir símann, lyklaborðið og að lokum endaði restin sem slef á peysunni minni. Þarna hélt ég svo á tólinu, í einhverju viðbjóðslegu hóstakasti með gjörsamlega allt á floti í kringum mig og það endaði með því að ég þurfti að skella á manneskjuna!!
Guð minn góður, tók einhverjar 15 mínútur að jafna mig almennilega á þessu ógeði sem hefði getað orðið minn bani, segja upp í vinnunni, skipta um kennitölu og panta mér far til Uzbekistan....

miðvikudagur

Blogglægð 

Fann þessa mynd um daginn.... nokkuð nett!! Leyfi ykkur að njóta hennar þangað til ég finn eitthvað til að skrifa um.....



föstudagur

Til hammara 

Brjánsi átti afmæli 29. apríl... var í eyðimörkinni rétt fyrir utan LA og hlustaði á Red Hot Chillipeppers spila afmælissönginn í 39 stiga hita... alveg einkennandi fyrir þann sveitta!! Án efa besti afmælisdagur af þessum 25 sem hann hefur upplifað.
Karen ungaði svo út alveg gullfallegri stelpu þennan sama dag... vá hvað ég er orðin rík af vinkonubörnum, yndislegt :-)

Af mér sjálfri er allt í full swing... ég blómstra sem aldrei fyrr!!

miðvikudagur

Frekja 

Jæja lesendur góðir, hver er ykkar skilgreining á frekju??? Er frekja það sama og þrjóska?

Mín túlkun á frekju er manneskja sem er alin upp við það að fá allt sem hugurinn girnist. Ef henni er neitað um eitthvað fer hún í fýlu eða tekur reiðiskast og fær þannig sínu fram. Hún fær það sem hún vill með góðu eða illu!

Þrjóskur einstaklingur er með ákveðnar skoðanir á hlutunum og hikar ekki við að koma þeim á framfæri. Stendur fastur á sínu og lætur ekki vaða yfir sig.... viðurkennir þó mistök sín og hlustar á skoðanir annarra og virðir þær...

Ég er þrjósk, ekki frek!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?