föstudagur
New York.... góð ferð!!
Hamingjan byrjaði strax á Keflavíkurflugvelli þegar okkur hlotnaðist sú lukka að fá Helgu Möller sem flugfreyju... 5 klukkutímar af Gleðibankabrosi er ómetanlegt og ekki skemmdi fyrir að gaurinn sem sat við hliðina á mér var á nettu fyllerýi og talaði við mig alla leiðina (semsagt ægilega ríkur vaxtaræktargaur sem ætlaði að bjóða okkur á klúbb sem Robert DeNiro á í NY... svalur)! Þannig að við löbbuðum alsæl frá borði á JFK flugvellinum í New York, veifuðum strax í gulan leigubíl og brunuðum á mjög ólöglegum hraða til Manhattan. Hótelið var 5 stjörnu miðað við rottuholuna sem við vorum á í London þannig að við vorum alsæl.
Föstudagurinn langi einkenndist alls ekki af tárum og þjáningum heldur vel sykruðum morgunmat, prútti á mörkuðum, túristaleikjum í tveggja hæða strætó og svo leikhúsi um kvöldið... hlóum frá okkur allt vit á Spam alot og tókum svo gott næturrölt um Time Square. Svo rann laugardagurinn upp..... rifum okkur eldsnemma á fætur til að geta tekið góðan tíma í að borða orkuríkan morgunmat eins og daginn áður. Uppúr hádegi fórum við uppí þyrlu og tókum gott flug í kringum Manhattan, sáum frelsisstyttuna sem er nú ekki merkilegur pappír og nutum útsýnisins.
Körfuboltaleikurinn var snilld.... þvílíka showið í kringum þetta og alveg þrusu stemmari. Sáum Patrick Ewing eins og sést á þessari mynd...... hver þekkir ekki þennan fræga mann?? (hann er að sjálfsögðu í rauðu peysunni...)
Þriðjudagurinn var síðasti dagurinn okkar og þegar við vorum búin að tékka okkur út af hótelinu tókum við einn gulann og brunuðum í heimsókn til Einars sem er yfir Ferðamálastofu í Ameríku.... vá hvað það var rosalega fróðleg og skemmtileg heimsókn!
Föstudagurinn langi einkenndist alls ekki af tárum og þjáningum heldur vel sykruðum morgunmat, prútti á mörkuðum, túristaleikjum í tveggja hæða strætó og svo leikhúsi um kvöldið... hlóum frá okkur allt vit á Spam alot og tókum svo gott næturrölt um Time Square. Svo rann laugardagurinn upp..... rifum okkur eldsnemma á fætur til að geta tekið góðan tíma í að borða orkuríkan morgunmat eins og daginn áður. Uppúr hádegi fórum við uppí þyrlu og tókum gott flug í kringum Manhattan, sáum frelsisstyttuna sem er nú ekki merkilegur pappír og nutum útsýnisins.Svo tók við maraþon ganga... það var alveg viðbjóðslega kalt nánast allan tímann þannig að það var þrammað áfram til að halda líkamshitanum í réttum skorðum... það tókst stundum en litlu munaði að við hefðum forskalast. Bjössi var nú búinn að vara okkur við þessum kulda og mælti eindregið með því að við myndum klæðst pelsum í þessari ferð. Hefðum kannski átt að hlusta á hann en hefðum mjög líklega verið lamin í Harlem ef við hefðum sést þar í pelsum, þannig að við létum úlpurnar nægja.
Á páskadag ætlaði ég að vera ægilega góð kærasta og gaf Óla páskaegg númer 4 sem ég var búin að dröslast með í töskunni frá Íslandi, það var bara smá brotið en ekki hafði Ólinn mikinn áhuga á þessu eggi þannig að ég varð að borða það allt sjálf.... enda ekki búin að borða nægan sykur í þessari ferð þannig að þetta var kærkomið egg!
Á páskadag ætlaði ég að vera ægilega góð kærasta og gaf Óla páskaegg númer 4 sem ég var búin að dröslast með í töskunni frá Íslandi, það var bara smá brotið en ekki hafði Ólinn mikinn áhuga á þessu eggi þannig að ég varð að borða það allt sjálf.... enda ekki búin að borða nægan sykur í þessari ferð þannig að þetta var kærkomið egg!
Túristaleikirnir héldu áfram ásamt búðarrápi þar sem ég verslaði mér alveg nákvæmlega ekki neitt en Óli keypti hinsvegar 3 brjóstahaldara og þeir voru ekki einusinni handa mér.... Held ég verði að fara að endurskoða þetta samband aðeins, hehe!! Fórum á The Museum of Natural History (þar sem myndin The Museum var tekin upp) og það var alveg rosaleg ferð, allt of mikið að sjá.... örugglega stærsta safn í öllum heiminum og ekkert líkt því sem er í myndinni. Um kvöldmatarleitið ákváðum við að skella okkur uppí Empire State bygginguna þar sem það var ekki nein röð fyrir utan. Hinsvegar voru alveg endalausar raðir inni og vorum við dregin á asnaeyrum í 4 klukkutíma áður en við komumst uppá topp.... meiriháttar útsýni og 15 mínútna stopp áður en við ákváðum að fara aftur niður..... það var nú ekki það auðveldasta og leið mér eins og það væri verið að draga mig til slátrunar. Ekkert loft og enn meiri raðir til að komast útúr þessu blessaða húsi..... kom oft uppí hausinn að brjóta glugga og hoppa út, allavega kvalarminni dauðdagi.
Mánudagurinn var ljúfur, rölt um Central park og staðurinn skoðaður þar sem John Lennon frændi minn var skotinn. Steik í Madison Square Garden áður en haldið var á körfuboltaleikinn... var algjört steranaut sem við fengum og ekki var búið að sprauta minni sterum í kartöflurnar, sjæse!!
Mánudagurinn var ljúfur, rölt um Central park og staðurinn skoðaður þar sem John Lennon frændi minn var skotinn. Steik í Madison Square Garden áður en haldið var á körfuboltaleikinn... var algjört steranaut sem við fengum og ekki var búið að sprauta minni sterum í kartöflurnar, sjæse!!
Körfuboltaleikurinn var snilld.... þvílíka showið í kringum þetta og alveg þrusu stemmari. Sáum Patrick Ewing eins og sést á þessari mynd...... hver þekkir ekki þennan fræga mann?? (hann er að sjálfsögðu í rauðu peysunni...)
Þriðjudagurinn var síðasti dagurinn okkar og þegar við vorum búin að tékka okkur út af hótelinu tókum við einn gulann og brunuðum í heimsókn til Einars sem er yfir Ferðamálastofu í Ameríku.... vá hvað það var rosalega fróðleg og skemmtileg heimsókn! Risahamborgarabúllan heimsótt og rölt um Time Square þangað til fórum á flugvöllinn. Engin Helga Möller á leiðinni heim en það var allt í lagi þar sem við vorum svo þreytt að við hefðum hvort sem er ekki haft orku í að horfa á hana í fimm klukkutíma. Stoppuðum ekkert í Reykjavík, nema bara á bílaplaninu hjá Karen í 2 mínútur, heldur brunuðum beint til Akureyrar. Ólöglega mikið magn af magic drukkið á leiðinni, útvarpið þanið í botn og sungið með... allt til að halda okkur vakandi.

