<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

27. apríl 2003 

Ég mun aldrei gleyma þessum degi... klukkan korter í sex sat ég við útvarpið heima og var að hlusta á handboltalýsingu. Mamma var í eldhúsinu að pússa alla spariskóna okkar.... svo hringir síminn. Bjössi svara og hann og pabbi þjóta til ömmu.... 10 mínútum seinna er afi dáinn. Gleymi því aldrei hvernig mér leið og hvað mikil sorg var í hjarta mínu á þessari stundu.
Nákvæmlega saman dag er Óli minn að upplifa algjöra andstæðu við mínar tilfinningar.... Elvar Máni fæddist þennan dag og því mesti gleðidagur sem hann hefur upplifað. Einn stórkostlegur maður kveður þetta líf en önnur yndisleg mannvera fæðist.
Þótt ég hafi hoppaði yfir undirbúninginn, meðgönguna, fæðinguna, fyrsta brosið, skrefin og það allt. Hoppaði yfir fyrsta afmælisdaginn, annan afmælisdaginn og þann þriðja kem ég sterk inní fjögurra ára afmælið og vonandi sem flest héðan í frá..... Litli pjakkurinn á heimilinu á afmæli í dag og í því tilefni var bökuð súkkulaðikaka og í kvöld verða grillaðar pylsur ofaní fjölskylduna :-)

P.S. Karen, þetta er mjög góður dagur til að koma með barn í heiminn.... rembast svo ;-)

þriðjudagur

Nei, þetta gengur ekki 

Hvorugur sumur hver og einn, hvor og nokkur einhver..... annar hver, annar hvor, hvor tveggja annar tveggja allur.....!!!!

Af hverju þessi atviksorð eru búin að vera föst í hausnum á mér í mörg ár er með öllu óskiljanlegt. Veit að vísan er lengri en geðveiki mín nær sem betur fer ekki yfir hana alla!! Svei mér þá ef það fer ekki að koma tími á einhverskonar skottulækningar...

mánudagur

Stirður og þreyttur líkami 

OK, komin heim úr enn einni Reykjavíkurreisunni og er alveg uppgefin. Hlaupandi fram og til baka alla helgina, hengjandi upp allskonar myndir og dót, dröslast með troðfulla kassa af bæklingum út um allt, skera niður mat í liðið sem stóð eins og betlarar við básinn okkar, standa næstum allan sólarhringinn og fá ekki neitt að borða nema M&M og svo að sjálfsögðu brosa, brosa, brosa..... settist uppí flugvélina í gærkvöldi og fann hvernig þreytan rann úr líkamanum á mér, sofnaði næstum á leiðinni heim þar sem röddin í flugþjóninum var svo róandi að ég fílaði mig eins og ég væri að hlusta á einhverri sjálfshjálpar spólu.
Bjóst við fótanuddi og dekri í gærkvöldi eftir allt álagið sem þessar aumingjans lappir hafa þurft að þola og að sjálfsögðu líkaminn allur eftir næringarskort og annan viðbjóð.... en nei, þurfti að sjá um þetta allt sjálf!!! Á eftir að svekkja mig á þessu endalaust.....

Erfiðast í heimi var að vakna í morgun og dröslast í vinnuna... og það er bara mánudagur.

miðvikudagur

Í tollinum 

Það er alltaf jafn mikil stemmning að fara í gegnum tollinn. Venjulega set ég bara upp bros og tölti í gegn, ekki vandamálið. Eitthvað hefur brosið verið slappt þennan kalda miðvikudagsmorgun þegar við komum heim frá NY.
Fólkið á undan okkur hafði rölt í gegn án þessa að verðirnir hefðu nokkurn einasta áhuga á þeim. Svo kom allt í einu ungt fólk og þá um að gera að stoppa það og láta töskurnar renna í gegnum gegnumlýsingartækið góða. Það var nú ekki vandamálið og við vippuðum töskunum uppá. Óli flaug í gegn en þegar ég ætlaði að taka mína tösku horfði vörðurinn á mig og spurði hvort ég ætti þessa tösku.... ég játti því og var þá vinsamlegast beðin um að koma á bakvið!!
Þegar ég var komin á bak við tjöldin bað maðurinn mig um að opna töskuna en sjálfur setti hann upp latex hanskana.... úfffff, þarna voru allskonar hugsanir komnar í gang í hausnum á mér. Ég opnaði töskuna og hann byrjaði að róta eitthvað í henni. Tók upp verkjatöflurnar sem ég var að smygla inní landið en hafði ekki mikinn áhuga á þeim en loks tók hann upp poka sem ég hafði keypt í súkkulaðiverksmiðjunni Hersley´s.... Keypti kassa af svona litlum kossum sem hver og einn var vafinn í álpappír..... Í gegnumlýsingartækinu leit þetta út eins og hrúga af hasskögglum!!!


föstudagur

New York.... góð ferð!! 

Hamingjan byrjaði strax á Keflavíkurflugvelli þegar okkur hlotnaðist sú lukka að fá Helgu Möller sem flugfreyju... 5 klukkutímar af Gleðibankabrosi er ómetanlegt og ekki skemmdi fyrir að gaurinn sem sat við hliðina á mér var á nettu fyllerýi og talaði við mig alla leiðina (semsagt ægilega ríkur vaxtaræktargaur sem ætlaði að bjóða okkur á klúbb sem Robert DeNiro á í NY... svalur)! Þannig að við löbbuðum alsæl frá borði á JFK flugvellinum í New York, veifuðum strax í gulan leigubíl og brunuðum á mjög ólöglegum hraða til Manhattan. Hótelið var 5 stjörnu miðað við rottuholuna sem við vorum á í London þannig að við vorum alsæl.

Föstudagurinn langi einkenndist alls ekki af tárum og þjáningum heldur vel sykruðum morgunmat, prútti á mörkuðum, túristaleikjum í tveggja hæða strætó og svo leikhúsi um kvöldið... hlóum frá okkur allt vit á Spam alot og tókum svo gott næturrölt um Time Square. Svo rann laugardagurinn upp..... rifum okkur eldsnemma á fætur til að geta tekið góðan tíma í að borða orkuríkan morgunmat eins og daginn áður. Uppúr hádegi fórum við uppí þyrlu og tókum gott flug í kringum Manhattan, sáum frelsisstyttuna sem er nú ekki merkilegur pappír og nutum útsýnisins.
Svo tók við maraþon ganga... það var alveg viðbjóðslega kalt nánast allan tímann þannig að það var þrammað áfram til að halda líkamshitanum í réttum skorðum... það tókst stundum en litlu munaði að við hefðum forskalast. Bjössi var nú búinn að vara okkur við þessum kulda og mælti eindregið með því að við myndum klæðst pelsum í þessari ferð. Hefðum kannski átt að hlusta á hann en hefðum mjög líklega verið lamin í Harlem ef við hefðum sést þar í pelsum, þannig að við létum úlpurnar nægja.
Á páskadag ætlaði ég að vera ægilega góð kærasta og gaf Óla páskaegg númer 4 sem ég var búin að dröslast með í töskunni frá Íslandi, það var bara smá brotið en ekki hafði Ólinn mikinn áhuga á þessu eggi þannig að ég varð að borða það allt sjálf.... enda ekki búin að borða nægan sykur í þessari ferð þannig að þetta var kærkomið egg!
Túristaleikirnir héldu áfram ásamt búðarrápi þar sem ég verslaði mér alveg nákvæmlega ekki neitt en Óli keypti hinsvegar 3 brjóstahaldara og þeir voru ekki einusinni handa mér.... Held ég verði að fara að endurskoða þetta samband aðeins, hehe!! Fórum á The Museum of Natural History (þar sem myndin The Museum var tekin upp) og það var alveg rosaleg ferð, allt of mikið að sjá.... örugglega stærsta safn í öllum heiminum og ekkert líkt því sem er í myndinni. Um kvöldmatarleitið ákváðum við að skella okkur uppí Empire State bygginguna þar sem það var ekki nein röð fyrir utan. Hinsvegar voru alveg endalausar raðir inni og vorum við dregin á asnaeyrum í 4 klukkutíma áður en við komumst uppá topp.... meiriháttar útsýni og 15 mínútna stopp áður en við ákváðum að fara aftur niður..... það var nú ekki það auðveldasta og leið mér eins og það væri verið að draga mig til slátrunar. Ekkert loft og enn meiri raðir til að komast útúr þessu blessaða húsi..... kom oft uppí hausinn að brjóta glugga og hoppa út, allavega kvalarminni dauðdagi.
Mánudagurinn var ljúfur, rölt um Central park og staðurinn skoðaður þar sem John Lennon frændi minn var skotinn. Steik í Madison Square Garden áður en haldið var á körfuboltaleikinn... var algjört steranaut sem við fengum og ekki var búið að sprauta minni sterum í kartöflurnar, sjæse!!

Körfuboltaleikurinn var snilld.... þvílíka showið í kringum þetta og alveg þrusu stemmari. Sáum Patrick Ewing eins og sést á þessari mynd...... hver þekkir ekki þennan fræga mann?? (hann er að sjálfsögðu í rauðu peysunni...)

Þriðjudagurinn var síðasti dagurinn okkar og þegar við vorum búin að tékka okkur út af hótelinu tókum við einn gulann og brunuðum í heimsókn til Einars sem er yfir Ferðamálastofu í Ameríku.... vá hvað það var rosalega fróðleg og skemmtileg heimsókn!
Risahamborgarabúllan heimsótt og rölt um Time Square þangað til fórum á flugvöllinn. Engin Helga Möller á leiðinni heim en það var allt í lagi þar sem við vorum svo þreytt að við hefðum hvort sem er ekki haft orku í að horfa á hana í fimm klukkutíma. Stoppuðum ekkert í Reykjavík, nema bara á bílaplaninu hjá Karen í 2 mínútur, heldur brunuðum beint til Akureyrar. Ólöglega mikið magn af magic drukkið á leiðinni, útvarpið þanið í botn og sungið með... allt til að halda okkur vakandi.
Alltaf gott að koma heim og eftir að hafa knúsað Elvar Mána í klessu var farið í sturtu og beint uppí rúm....


Góða helgi.... kiss kiss :-)




þriðjudagur

Ævintýri 

Þetta verður alveg í stíl við síðustu færslu.... er að fara til New York á fimmtudaginn og í morgun beið mín póstur frá manni sem vinnur við ferðamál í NY og hann var að benda mér á góða veitingarstaði... Fyrsti staðurinn sem nefndur var í þessu bréfi heitir Jackson Hole og þar eru seldir risa hamborgarar.... af því að ég þarf svo virkilega á því að halda!!
Þetta verða fimm dagar fullir af risahamborgurum, sjeik og hunangspizzum....

Farin á vit ævintýranna enn eina ferðina....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?