föstudagur
Ferðasækó!
Alveg spurning um að forgangsraða og kunna að eyða peningunum á réttum stöðum... hef gengið í strigaskóm allan þennan vetur. Á ekki heldur neina almennilega úlpu og skíðabuxurnar mínar eru frá frekar óheppilegu tímabili í lífi mínu....Hmmm, á klárlega ekki að eiga heima á Íslandi!! Svo er það spurningin, hvað kostar að vera hipp og kúl og geggjað töff yfir vetrartímann á Íslandi.... skór kosta svona 12.000, góð úlpa á 11.000 og buxur á kannski 7.000 þannig að samtals myndi ég eyða um þrjátíu þúsund kalli í þetta. Það er næstum flugfar til New York.... held ég haldi bara áfram að böðlast um á strigaskónum og illa til fara yfir vetrartímann og skelli mér frekar út ;-) Þannig að...... Búið er að bóka flug, panta gistingu og mun New York njóta nærveru okkar Óla 5.-10. apríl :-)
Móttó mitt í lífinu er að gera allt það sem mig langar til að gera og njóta þess í botn að vera til. Ekki sjá eftir neinu og framkvæma flest allar þær geðveiku hugmyndir sem koma uppí kollinn á mér.
Sumir kalla mig klikkaða en sjálfri finnst mér ég vera æðisleg og rosalega sniðug stelpa....