fimmtudagur
Átsýki
mánudagur
Kata klikk góðan daginn!!
... og til að nýta þessa milljóna króna heimild sem ég er með á Visanu mínu alveg í botn, ákvað ég að panta flug til Mallorca í sumar... beint frá Akureyri. Fjölskylduferð í sólina í viku... þetta verður klassa sumar ;-)
miðvikudagur
I love it....
Það hlaut að koma að því.... hæðsti vísareikningur í sögu kreditkortanotkunar minnar hefur litið dagsins ljós. Hjartað tók nokkur auka slög og ég er ekki frá því að það styttist í að ég þurfi að fá gangráð.
Hvað ætla ég eiginlega að ferðast mikið á næstu mánuðum.... Flug til New York, flug til Minneapolis, flug til San Fransisco, flug til Denver, annað flug til Minneapolis, hótel í New York, þyrluflug um Manhattan, miðar á körfuboltaleik í NBA deildinni, leikhúsmiðar, út að borða reikningar, föt, snyrtivörur, fríhafnardót frá því í Danmörku.... PLAFFFF!!!!
Eins gott að sambönd mín við bankann rofni ekki alveg strax....

Karlmenn...
Fór á Píkusögur með Þóru á fimmtudagskvöldið.... Leikhúsið var troðfullt af fallegustu konum Norðurlands ásamt 5 helstu karlmönnum svæðisins. Held að minn maður hefði haft mjög gaman að þessu og hann hefði fittað vel inní þennan annars vel valda karlmannshóp!
Um leið og ég og Þóra löbbuðum upp blasti við okkur fyrsti karlmaður kvöldsins.... Hákon, eða Konni frændi eins og hann er svo gjarnan kallaður. Eftir að hafa staðið frammi á gangi í drikklanga stund og beðið eftir að opnað yrði inní salinn gekk þessi líka fjall myndarlegi maður upp tröppurnar. Hvort það hafi verið hitinn og loftleysið sem varð til þess að helmingur kvennanna sem voru þarna saman komnar féllu í yfirlið veit ég ekkert um en ”Kallinn” var mættur á svæðið..... Rögnvaldur hinn umboðsmannslausi og með dömu uppá arminn! Get nú ekki sagt að mér hafi verið brugðið að sjá hann á þessu augnabliki..... umræðuefnið var jú kynfæri á konum og allt stefndi í fullan sal af brjóstum, hann kann þetta ennþá ;-)

Meira af meintri geðveiki minni
Alltaf geri ég það sama, labba inní klefa í sundlauginni og að skáp 192.... Þegar ég vann í bankanum þá var maður alltaf að vinna með númerin á útibúunum, Akureyri er til dæmis númer 0162. Svo festist ég í þessum tölum og ómeðvitað fór ég alltaf að nota skáp 192 sem er útibúsnúmerið á Húsavík af öllum stöðum!! Ef 192 er ekki laus sný ég mér að 162 eða 164 (sem var númerið á Brekkuútibúinu). Selfoss (152) verður líka stundum fyrir valinu en ef enginn af þessum skápum er laus, þá hætti ég við að fara í sund eða bíð eftir að alilarnir sem eru í þessum skápum fari uppúr.... það er reyndar ekki satt!
mánudagur
Ég er freak...!!!
Ég er alveg einstökum hæfileikum gædd.... mér tekst að pirra mig alveg útí hið óendanlega á einhverju sem skiptir ekki neinu máli. Ég er semsagt með einhverskonar ”ganga frá” æði. Þegar ég er búin að borða, verða diskarnir að fara beint í uppþvottavélina. Helst vil ég þvo pottana og pönnurnar áður en ég borða því mér líður illa að hafa þetta skítugt á bekkjunum. Alveg það versta er að vakna á morgnana og sjá óhreina diska á eldhúsbekknum eða borðinu, þoli það ekki. Þegar þvotturinn kemur úr þurrkaranum verður að brjóta hann strax saman og setja hann inní skáp. Ef þvottur hangir á snúrinni má hann helst ekki vera lengur þar en einn dag, þá á að brjóta hann saman og inní skáp. Ég verð að moppa gólfið heima minnst einusinni á dag annars fæ ég samviskubit. Ég þoli ekki að sjá föt liggjandi á gólfinu og þegar þvottakarfan er orðin full þvæ ég þangað til hún er tóm. Blöð og annar ruslpóstur á að fara strax í ruslið þegar búið er að lesa hann, ekki liggja á borðinu og safnast þar saman.
Svo verð ég pirruð yfir því að sambýlingurinn skuli ekki vera heltekinn af þessum þráhyggjum eins og ég.... sjitt hvað ég er biluð!!
Svo verð ég pirruð yfir því að sambýlingurinn skuli ekki vera heltekinn af þessum þráhyggjum eins og ég.... sjitt hvað ég er biluð!!
föstudagur
Skatturinn
Alveg búin að sjá það að það margborgar sig að eiga ekki neitt nema peninga.... tók uppá því um daginn að gera skattaskýrsluna mína og í heildina tók þetta 5 mínútur. Pikka inn nokkrar tölur úr bankabókunum mínum, leggja saman dagpeninginn og þá var þetta komið... vista framtal og skila :-)
Annars er allt í full swing hér í snjónum á Akureyri.... hálfur hugurinn er mættur til New York á meðan hinn helmingurinn skipuleggur San Fransisco/ Denver ferðina, kem engu í verk hérna í vinnunni. Tíminn líður nú samt alveg nógu andskoti hratt og það er alltaf helgi.

Ferðasækó!
Alveg spurning um að forgangsraða og kunna að eyða peningunum á réttum stöðum... hef gengið í strigaskóm allan þennan vetur. Á ekki heldur neina almennilega úlpu og skíðabuxurnar mínar eru frá frekar óheppilegu tímabili í lífi mínu....Hmmm, á klárlega ekki að eiga heima á Íslandi!! Svo er það spurningin, hvað kostar að vera hipp og kúl og geggjað töff yfir vetrartímann á Íslandi.... skór kosta svona 12.000, góð úlpa á 11.000 og buxur á kannski 7.000 þannig að samtals myndi ég eyða um þrjátíu þúsund kalli í þetta. Það er næstum flugfar til New York.... held ég haldi bara áfram að böðlast um á strigaskónum og illa til fara yfir vetrartímann og skelli mér frekar út ;-) Þannig að...... Búið er að bóka flug, panta gistingu og mun New York njóta nærveru okkar Óla 5.-10. apríl :-)
Móttó mitt í lífinu er að gera allt það sem mig langar til að gera og njóta þess í botn að vera til. Ekki sjá eftir neinu og framkvæma flest allar þær geðveiku hugmyndir sem koma uppí kollinn á mér.
Sumir kalla mig klikkaða en sjálfri finnst mér ég vera æðisleg og rosalega sniðug stelpa....