miðvikudagur
Valentýnusardagurinn
Svona í tilefni þess að það er dagur elskenda í dag ætla ég að deila því með ykkur í hversu rómantískum hugleiðingum ég er þessa stundina.
Í gærkvöldi fórum við uppí rúm klukkan rúmlega 11.... kjöftuðum eitthvað frameftir og þegar við ákváðum að loka augunum og fara að sofa kom litli kúturinn uppí og vissi ekkert hvað hann vildi. Allt var ómögulegt, honum var illt í eyrunum og greyið litla grét og grét.... þannig að klukkan rúmlega 2 í nótt sofnaði litli engillinn og ég og Óli líka. Entist þó ekki lengi því 3 tímum seinna vaknaði ég með alveg skelfilega túrverki. Þrjóskast við í rúminu í smá stund en staulast svo fram til að éta smá dóp... leggst aftur uppí rúm en fékk bara að hanga á brúninni þar sem maðurinn og barnið nutu sín alveg í botn þarna í rúminu. Ég ákvað þá að leggjast bara fram í sófa og reyna að sofa þar. Tók alltof langan tíma fyrir þessar blessuðu verkjatöflur að byrja að virka þannig að þegar ég er alveg að sofna byrjar vekjaraklukkan að hringja.... alveg æðislegt. Náði að dotta í einhvern hálftíma þegar ég rík á fætur og fatt að ég er orðin of sein í vinnuna. Lít í spegil og sé andlitið á mér sem ákvað að fá einhverskonar ofnæmiskast því það er útsteypt í rauðum upphleyptum bólum.... Sit svo hérna í vinnunni núna, finn að verkjatöflurnar eru að hætta að virka þannig að ég á mjög erfitt með að sitja kyrr og hugsa ekki um neitt annað en að komast heim og fá eitt gott knús.
... þá er bara næst á dagskrá að fjölga mannkyninu svo ég geti upplifað margar svona nætur :-)