föstudagur
I´m back
Þá er maður aftur mættur í vinnu eftir alveg stórgott ferðalag til Köben, reyndar nokkuð mikil seinkun á fluginu í gær og ég rétt náði síðustu vélinni heim til Akureyrar í gærkvöldi... mikill hressleiki í gangi þessa stundina. Kynningin gekk ljómandi vel, fullt af ferðaþjónustuaðilum og blaðamönnum sem létu sjá sig…. bara gaman að því.
Annars var ég að hugsa um hvað gerðist merkilegt í þessari ferð og það er bara eitt sem stendur uppúr… sms-ið sem Birna sendi mér á þriðjudagskvöldið um að litli stubburinn þeirra væri kominn í heiminn. Ég hugsaði ekki um annað alla ferðina og get ekki beðið eftir að hitta litlu fjölskylduna. Það er á svona stundum sem maður virkilega áttar sig á um hvað lífið snýst :-)
En svo við kannski snúum okkur aftur að Köben þá fór ég að velta því fyrir mér af hverju Íslendingar sækja svona í þessa borg. Tala alltaf um að það sé eins og að koma heim að fara til Kaupmannahafnar, engin borg í heiminum sé eins og Kaupmannahöfn og að það sé nauðsynlegt að fara þangað allavega einusinni á ári… ætli þetta fólk hafi ekki ferðast lengra en til Danmerkur og falli fyrir því fyrsta sem þau sjá? Sjálf hef ég upplifað margar miklu skemmtilegri borgir þótt að það sé vissulega gaman að koma þangað, ekki spurning.
Í þessari ferð fékk ég þó þessa “heima” tilfinningu… Það kom snjó “stormur” með tilheyrandi ógeðisslabbi og roki, maður labbaði því á milli húsa með hausinn niður í bringu, strætóarnir eru gulir og annar hver maður er Íslendingur… Alveg eins og í Reykjavík!!