<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur

Blóm 

Skrapp í Blómaval um daginn. Hér á Akureyri, eins og annars staðar, eru Blómaval og Húsasmiðjan í sama húsinu en þó eru bæði inngangur og útgangur í báðum búðunum. Ég labba innum rennihurðina á Blómavali og skoða mig um í smá stund. Hafði voðalega takmarkaðan áhuga á því sem í boði var þannig að ég ákvað bara að slútta þessu og labbaði að útganginum..... þar var rennihurð sem hefði átt að opnast en gerði það ekki! Ég hélt að neminn næmi mig kannski ekki þar sem ég er svona frekar smávaxin, veifaði því höndunum en ekkert gerðist. Jæja, sá að hurðin þar sem inngangurinn er var alltaf að opnast þannig að ég ákvað að rölta þagnað aftur og athuga hvort ég kæmist út þar. Labbaði í gegnum alla búðina til að komast að inngangnum en ekki vildi hurðin renna frá (enda bara hönnuð sem inngangshurð). Þetta fannst mér frekar fyndið og ákvað að prófa útihurðina einu sinni enn. Labbaði enn eina ferðina í gegnum þessa helvís búð og að útgangnum.... en ekki vildi hurðin opnast, góðan daginn..... þannig að ég endaði á því að þramma yfir í Húsasmiðjuna og fara út þeim megin... ekkert ægileg spes að vera föst inní Blómaval!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?