þriðjudagur
Die lesbíans
Það er neflilega það…. Niðurskurðurinn er hafinn á heimilinu. Hátíðin “leiðin að minni bumbu” er að ná hámarki og allir ferlega hamingjusamir með það. Ekki það að ég sé eitthvað að fara að hreyfa mig, nei guð minn góður, dettur það ekki til hugar. Niðurskurðurinn felst í einu Prins Póló á dag en ekki 4… ég tel það vera afrek!!
Annars er allt við það sama, króníska ferðaveikin mín er að gera mig geðveika. Er búin að finna óteljandi ferðir sem mig langar í…. Skoða hótel og eiginlega bóka allt heila klabbið. Búin að ákveða hvert ég mun fara í brúðkaupsferð og fleira ferlega spennandi! Það er eins og ég sé með stanslausan njálg í rassinum sem bara stækkar og hreyfir sig hraðar með aldrinum… váá, fæ bara tár í augun við að hugsa um þetta!!
Mig dreymdi svo hrikalegann draum í nótt að ég fæ fyrir hjartað í hvert skipti sem ég loka augunum og sé þetta fyrir mér…. Var misnotuð af lesbíu!!! Eða sko, stelpa sem ég veit að er lesbía var að reyna við mig í draumnum og mér fannst það ekki skemmtilegt…..

laugardagur
Litla fjölskyldan
Verð að deila þessu með ykkur.... er til eitthvað fallegra??Litlu stubbur er sko minni en baby born dúkka, algjört krútt :-)
föstudagur
I´m back
Þá er maður aftur mættur í vinnu eftir alveg stórgott ferðalag til Köben, reyndar nokkuð mikil seinkun á fluginu í gær og ég rétt náði síðustu vélinni heim til Akureyrar í gærkvöldi... mikill hressleiki í gangi þessa stundina. Kynningin gekk ljómandi vel, fullt af ferðaþjónustuaðilum og blaðamönnum sem létu sjá sig…. bara gaman að því.
Annars var ég að hugsa um hvað gerðist merkilegt í þessari ferð og það er bara eitt sem stendur uppúr… sms-ið sem Birna sendi mér á þriðjudagskvöldið um að litli stubburinn þeirra væri kominn í heiminn. Ég hugsaði ekki um annað alla ferðina og get ekki beðið eftir að hitta litlu fjölskylduna. Það er á svona stundum sem maður virkilega áttar sig á um hvað lífið snýst :-)
En svo við kannski snúum okkur aftur að Köben þá fór ég að velta því fyrir mér af hverju Íslendingar sækja svona í þessa borg. Tala alltaf um að það sé eins og að koma heim að fara til Kaupmannahafnar, engin borg í heiminum sé eins og Kaupmannahöfn og að það sé nauðsynlegt að fara þangað allavega einusinni á ári… ætli þetta fólk hafi ekki ferðast lengra en til Danmerkur og falli fyrir því fyrsta sem þau sjá? Sjálf hef ég upplifað margar miklu skemmtilegri borgir þótt að það sé vissulega gaman að koma þangað, ekki spurning.
Í þessari ferð fékk ég þó þessa “heima” tilfinningu… Það kom snjó “stormur” með tilheyrandi ógeðisslabbi og roki, maður labbaði því á milli húsa með hausinn niður í bringu, strætóarnir eru gulir og annar hver maður er Íslendingur… Alveg eins og í Reykjavík!!

mánudagur
For helvede
Jæja, er farin til Kaupmannahafnar. Verður eitthvað skrautlegt þar sem ég ætlaði aldrei að komast í gang á sýningunni um daginn og hún fór fram á ensku… eina skiptið sem ég fer á kostum í dönskunni er eftir nokkra bjóra (bara svona eins og allir Íslendingar).
Allavega, ef ég verð ekki fyrir alvarlegum skaða á þessari Íslendinganýlendu þá hendi ég einhverju hingað inn þegar ég kem til baka….
Bless!

Sjúklingur
Held að afköst mín í vinnunni sé hægt að tengja við ofneyslu sykurs sem kemur fram í ofsafenginni hegðun þar sem hugtakið "að sitja kyrr" þekkist ekki... að borða tvö XXL Prins póló í hádegismat á hverjum degi og láta ekki kvöldmatinn nægja sér heldur að verða að úða í sig um hálfan líter af ís með sjónvarpinu. Sykursjokkið kemur fram í titrandi fæti (reyndar titrar hann af því að ég er alveg að pissa á mig), stari á klukkuna og erfiðri bið eftir að komast út í sjoppu og kaupa meira prins póló.....
Þakka guði fyrir að það sé komin helgi..... það friðar samviskuna aðeins, að mega borða nammi um helgar.... Maður er svo sjúkur!!

miðvikudagur
Valentýnusardagurinn
Svona í tilefni þess að það er dagur elskenda í dag ætla ég að deila því með ykkur í hversu rómantískum hugleiðingum ég er þessa stundina.
Í gærkvöldi fórum við uppí rúm klukkan rúmlega 11.... kjöftuðum eitthvað frameftir og þegar við ákváðum að loka augunum og fara að sofa kom litli kúturinn uppí og vissi ekkert hvað hann vildi. Allt var ómögulegt, honum var illt í eyrunum og greyið litla grét og grét.... þannig að klukkan rúmlega 2 í nótt sofnaði litli engillinn og ég og Óli líka. Entist þó ekki lengi því 3 tímum seinna vaknaði ég með alveg skelfilega túrverki. Þrjóskast við í rúminu í smá stund en staulast svo fram til að éta smá dóp... leggst aftur uppí rúm en fékk bara að hanga á brúninni þar sem maðurinn og barnið nutu sín alveg í botn þarna í rúminu. Ég ákvað þá að leggjast bara fram í sófa og reyna að sofa þar. Tók alltof langan tíma fyrir þessar blessuðu verkjatöflur að byrja að virka þannig að þegar ég er alveg að sofna byrjar vekjaraklukkan að hringja.... alveg æðislegt. Náði að dotta í einhvern hálftíma þegar ég rík á fætur og fatt að ég er orðin of sein í vinnuna. Lít í spegil og sé andlitið á mér sem ákvað að fá einhverskonar ofnæmiskast því það er útsteypt í rauðum upphleyptum bólum.... Sit svo hérna í vinnunni núna, finn að verkjatöflurnar eru að hætta að virka þannig að ég á mjög erfitt með að sitja kyrr og hugsa ekki um neitt annað en að komast heim og fá eitt gott knús.
... þá er bara næst á dagskrá að fjölga mannkyninu svo ég geti upplifað margar svona nætur :-)

Blóm
Skrapp í Blómaval um daginn. Hér á Akureyri, eins og annars staðar, eru Blómaval og Húsasmiðjan í sama húsinu en þó eru bæði inngangur og útgangur í báðum búðunum. Ég labba innum rennihurðina á Blómavali og skoða mig um í smá stund. Hafði voðalega takmarkaðan áhuga á því sem í boði var þannig að ég ákvað bara að slútta þessu og labbaði að útganginum..... þar var rennihurð sem hefði átt að opnast en gerði það ekki! Ég hélt að neminn næmi mig kannski ekki þar sem ég er svona frekar smávaxin, veifaði því höndunum en ekkert gerðist. Jæja, sá að hurðin þar sem inngangurinn er var alltaf að opnast þannig að ég ákvað að rölta þagnað aftur og athuga hvort ég kæmist út þar. Labbaði í gegnum alla búðina til að komast að inngangnum en ekki vildi hurðin renna frá (enda bara hönnuð sem inngangshurð). Þetta fannst mér frekar fyndið og ákvað að prófa útihurðina einu sinni enn. Labbaði enn eina ferðina í gegnum þessa helvís búð og að útgangnum.... en ekki vildi hurðin opnast, góðan daginn..... þannig að ég endaði á því að þramma yfir í Húsasmiðjuna og fara út þeim megin... ekkert ægileg spes að vera föst inní Blómaval!!
fimmtudagur
Framundan
Ég ætla að skreppa til Reykjavíkur á morgun... reyndar í vinnuferð en so what!
Ég fer í aðra vinnuferð til Kaupmannahafnar 20. febrúar.
Ég er að skipuleggja óvissuferð fyrir Óla yfir páskana.... must að skella sér aðeins til útlanda þá.
Ég fer á alltof mikið flakk á milli Akureyrar og Reykjavíkur í apríl.
Ég fer til Ameríku í sumarfrí.
Ég ætla að rúnta um suðurlandsundirlendið og austfirðina í júlí.
Ég fer á ættarmót yfir verslunarmannahelgina í Sælingsdal (það vita nú allir hvar hann er!)
Ég mæti galvösk í vinkonuhittinginn helgina eftir versló.
Ég væri til í að slútta sumrinu með Þóru í Köben í ágúst.
... er svo ekki alveg möst að fara í eina helgarferð í haust??

Morð
Var mikið um minningar í síðustu færslu þótt ýmislegt hafi gleymst.... það er hins vegar ein minning sem ég ætla að fjalla aðeins betur um. Þannig er nú mál með vexti að í gær átti amma mín 85 ára afmæli sem þýðir að fyrir fimm árum síðan urðum ég og Bjössi fyrir morðhótun.
Ætla svo sem ekki að nafngreina þessa móðursystur sem ógnaði okkur svona ógurlega en hún var kjörin ungfrú Úrval Útsýn árið 1976..... þessi fyrrum fegurðardrotting er augljóslega ekki eins falleg að innan og hún er að utan.
Fyrir fimm árum síðan vorum við systkinin send heim til móðursysturinnar til að sækja rjómatertu og ferja heim í Akurgerðið.... þennan vetur var búið að snjóa alveg gríðarlega mikið og einhverra hluta vegna voru göturnar nánast ekkert mokaðar þannig að bíllinn hossaðist mikið og rann til og frá. Við lögðum okkur í mikla lífshættu við að keyra þennan spöl til að sækja kökuna. Það hafðist fyrir rest og ungfrú Úrval Útsýn kom labbandi með þessa frægu rjómatertu útí bíl til okkar, rétti mér hana og kvaddi okkur með þessum fallegur orðum...... ”ef þið missið hana, þá drep ég ykkur!!!”
... þessu munum við aldrei gleyma!

Ég man....
.... eftir leikskólanum sem ég var á í Reykjavík og þegar mamma sendi mig stundum með slátur í nesti.
.... þegar ég (4 ára) og Gísli (7 ára) flugum alein til Ísafjarðar og pabbi gaf okkur tyggjópakka í nesti.
.... þegar Gísli fékk að fara í brúðkaupið hjá Hildi og Sigga en ekki ég..... nett brjáluð þá því hann fengi sennilega brennivín (já maður var ekki gamall þegar maður byrjaði að hugsa um áfengi).
.... þegar ég byrjaði í tónlistarskólanum og mér var bannað að læra á hljóðfærið sem ég hafði mestan áhuga á og ég og Bjössi vorum send í einhverja skelfilega spunatíma.
.... þegar ég þoldi ekki að allar barbie dúkkurnar mínar skyldu vera með sítt hár þannig að ég klippti hárið af meirihlutanum á þeim, shitt hvað þær eru ljótar í dag. Ákvað líka að endurhanna fötin þeirra með skærunum!
.... þegar Gísli fékk að fara í jarðaförina hjá langafa en ekki ég.... vissi ekkert hvað jarðaför var á þessum tíma en ósanngjarnt þrátt fyrir það.
.... þegar ég kynntist fyrstu vinkonu minni 5 ára og hvað ég er ánægð að hún skuli enn vera vinkona mín í dag!!
.... þegar Gísli var að pína okkur Bjössa einu sinni sem oftar og hann hljóp á klaufhamar og hjó næstum af sér litlutánna..... þorðum ekki að segja mömmu og pabba frá þessu og náðum að halda þessu leyndu í hátt í 20 ár.
..... þegar Gísli hélt pyntingunum áfram og kastaði mér í vegg heima sem ég svo braut með hausnum.
.... þegar ég var send með harðfisk í nesti í skólann og var lögð í ”einelti” útaf því!
.... þegar ég var alveg skelfilega leiðinleg á gelgjuárunum.
.... hvað mér þótti skemmtilegt í MA og hvað útskriftarferðin var mikil snilld.
.... þegar ég og Brjánsi byrjuðum á okkar skemmtilega húmorstímabili sem enn er í blóma!
.... þegar ég eignaðist fyrsta kærastann minn.
.... þegar ég ákvað að drekka áfengi í fyrsta skipti, þvílíkt kvöld sem það nú var!
.... þegar Bjössi fór í bakpokaferðalagið um Asíu og hvað ég saknaði hans ógurlega mikið.
.... þegar ég tilkynnti það í fyrsta skiptið að ég ætlaði að vera sundlaugarstjóri þegar Kiddi hættir.
.... þegar fyrsta vinkonubarnið fæddist og nú fer þeim óðum fjölgandi
.... þegar Gísli sagði okkur að hann og Stína ættu von á barni.
.... þegar Sunna Kristín fæddist og hvað hún er yndisleg og þegar Vilhjálmur Bjarni bættist í hópinn og hvað ég er heppin að eiga svona fullkomin frændsystkini.
..... þegar ég tók þá ákvörðun að flytja alein til Ástralíu en hvað ég var óendanlega fegin þegar Þóra ákvað að koma með mér. Ég mun aldrei nokkurntíman gleyma þeim tíma sem við áttum þar.
.... hvað ég var sorgmædd að þurfa að flytja aftur heim til Íslands.
.... hvað var mikið stuð á mér og sambýliskonunni í B10 og hvað við áttum ógleymanlegann tíma þar.
.... þegar fjölskyldan fór saman til útlanda í sumar og hvað ég á frábæra fjölskyldu.
.... þegar Halla besta frænka sagði mér að hún væri búin að trúlofa sig og að ég gat ekki hætt að brosa í viku á eftir.... er byrjuð að semja ræðuna í brúðkaupið og allt, talandi um að samgleðjast fólki.
.... kvöldið sem ég og Óli kynntumst!!
.... þegar ég hitti Elvar Mána í fyrsta skipti.
.... þegar helgarnar snérust um að djamma sem allra mest en snúast núna um að leika sér með bíla og fá vonandi að sofa til 10 á laugardagsmorgnum.
Góða helgi fólks :-)