<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur

Gleðilegt ár!! 

Þetta ár byrjaði svo sannarlega vel... leið yfir mig þegar 20 mínútur voru liðnar og Óli þurfti að pikka mig uppúr einhverjum runna. Því alveg tilvalið að renna yfir síðasta ár í nokkrum punktum.

Janúar: Byrjaði árið á því að vinna á meðan allir aðrir helltu sig blind fulla og djömmuðu grimmt.
Var mjög áttavillt og vissi ekkert hvað ég vildi gera við þetta blessaða líf mitt.
Djammaði grimmt með bankastarfsfólkinu og tók að mér umboðsmennsku. Stofnaði fyrirtækið Snillingar ehf. ásamt Birnu og hófst erfiðis vinna við að koma Rögga út. Ömurlegasta eftirpartý í heimi var haldið í B10 þar sem Binni sá algjörlega um öll leiðindin eins og venjulega.
Bjössinn snéri aftur til Svíþjóðar.

Febrúar: Mánuðurinn byrjaði á því að Lóa vinkona eignaðist gullfallega stelpu. Umboðsmennskan átti hug minn allan þar sem hinar ýmsu þokkadísir hringdu í mig dag og nótt til að fá að kynnast folanum. Reyndar var frekar mikið drama í kringum þessa umboðsmennsku en það fylgir víst. Var einnig djammað grimmt þennan mánuðinn, árshátíð Kaffi Akureyri, pabbi gamli hélt uppá 60 ára afmælið sitt, villtasta fimmtudagsdjamm sögunnar fór fram í B10 og farið var í barna- og menningarferð í borgina sem heppnaðist brilliant vel.
Ég varð lasin í þessum mánuði þar sem ég svaf stanslaust í 3 daga.

Mars: Mánuðurinn byrjaði vel þar sem mér var boðin vinna á Markaðsskrifstofu ferðamála sem ég þáði með bros á vör.
Kvaddi djammlífið í bankanum og nýr kafli í lífi mínu hófst.
Kynntist hljómsveitinni Dikta sem hefur varla farið úr spilaranum mínum síðan.
Ég ákvað að ganga skrefinu lengra í umboðsmennskunni og hóf að semja sjónvarpsþættina Dallas –Drama á Akureyri- sem þróaðist svo útí að hægt væri að kaupa sér pakkaferð til að skoða umgjörð og sögupersónur þáttanna... sá mikinn pening í þessum brannsa!! Já og svo var mikið um eftirparý í B10.

Apríl: Strax í byrjun apríl fékk ég leið á blogginu mínu og ákvað að hætta þessu bulli. Eftir tveggja vikna pásu sá ég að ég er of háð þessari síðu og hélt því þessum skrifum áfram.
Varð föðursystir í annað skipti þegar Vilhjálmur litli fæddist.
Ferðaðist frekar mikið þennan mánuðinn. Um páskana skellti ég mér til London þar sem ég hitti Bjössa og skemmtum við okkur konunglega þar í þrjá daga. Hittum meðal annars Sophiu Hansen, Stebba Hilmars, Eygló og svo Binna. Skelltum við systkinin okkur svo til Gautaborgar þar sem ég kannaði heimkynni litla bróðurs.
Þennan mánuð fór ég á mínu fyrstu sýningar á vegum vinnunnar og flaug nokkrum sinnum á milli Akureyrar og Reykjavíkur.
Komst að því að ég er haldin áttvillingarsjúkdómi á háu stigi.

Maí: Sambýliskonan eignaðist kærasta og sökk ég í eitthvert gríðarlegt þunglyndi. Sú eina í vinkonuhópnum sem átti ekki kærasta og á tímabili hélt ég því fram að ég væri lesbía. Djammaði sem aldrei fyrr þennan mánuðinn og hætti að vinna á Kaffi Akureyri til að hafa meiri tíma til að djamma. Til að toppa vonleysið ákvað Keith Richards að detta úr tré þannig að tónleikum Rolling Stones sem ég var að fara á, var aflýst!!

Júní: Skírnarveisla í Reykjavík og djamm með Karen og Grjóna í kjölfarið... fórum á kostum á skemmtistöðum borgarinnar og Karen sennilega aldrei grætt jafn mikið á því að hafa mig í liðveislu.
Fjölskylduferð til Svíþjóðar í þeim tilgangi að sjá Stones en í staðin þrifum við herbergið hans Bjössa og hjálpuðum honum að bera 40 kíló af bókum heim til Íslands. Áttum samt mjög góðan tíma í Gautaborg.
Gleymdi að minnast á tónleikana sem ég fór á með Roger Waters í Egilshöll... þvílíkt og annað eins meistaraverk verður ekki endurtekið!
Það flutti ung kona með lítið barn á efrihæðina í B10 og var eitthvað minna um svefn þennan mánuðinn.
Sólveig frænka dúxaði úr MA og var helgin 16.-18. júní algjör killer helgi..... var vakandi nánast stanslaust í 50 klukkutíma.
Halda átti útilegumótaröð B10 og E2 en eitthvað beilaði liðið þannig að Harpa Hrönn kom alla leið frá Reykjavík til að bjarga mér og djamma með mér.
Stundaði sundlaugina grimmt þennan mánuðinn.

Júlí: Bauð Þóru með mér í Hvalaskoðun á Húsavík þar sem ég kyngdi minni eigin ælu í fyrsta skipti.
Haldið var 10 ára Gaggareunion sem heppnaðist alveg gríðarlega vel.
Við sambýliskonan læstum okkur úti í fyrsta og eina skiptið. Harpa festist í eldhúsglugganum og 13 ára stelpustrákur kom og bjargaði okkur.
Brúðkaup hjá Rakel frænku og all svakalegt djamm í kjölfarið.
Fór á Sigurrós tónleika að Hálsi í Öxnadal og skemmti mér gríðarlega vel.
Sundlaugin líka heimsótt mjög regluleg.

Ágúst: Versló byrjaði strax á fimmtudeginum þar sem ég og Þóra tókum ansi gott grill- og trampolín djamm.
Fór aftur á Sigurrós tónleika en í þetta skiptið í Ásbyrgi.
Kynntist Óla mínum :-)
Bloggsíðan mín varð þriggja ára.
Sá dagur rann upp þar sem við þurftum að flytja út úr B10 og urðu þá ansi stór kaflaskipti í mínu lífi. Snéri bakinu við þessum ólifnaði sem einkenndi árið og breyttist í rólega, ábyrgðarfulla unga manneskju.
Fór á menningarnótt í Reykjavík og skemmti mér mjög vel.

September: Bjössi ákvað að yfirgefa landið og flutti til Californiu.
Ég var í stresskasti þennan mánuðinn þar sem atvinnuleysi blasti við mér um áramótin.
Fór á enn eina sýninguna fyrir sunnan og skellti mér í atvinnuviðtal í leiðinni, hefði getað fengið þá vinnu!
Safnaði einstaklega miklu sambandsspiki og er enn að.
Breyttist endanlega úr örvæntingarfullri fyllibyttu í rólyndismanneskju.

Október: Afmælismánuðurinn minn!! Pantaði mér pláss á Hrafnistu og er opinberlega orðin gamalmenni.
Enn ein Reykjavíkurferðin á einhverja fundi og Harpa Hrönn alltaf jafn elskuleg að redda mér í Reykjavík.
Ég og Óli skelltum okkur í helgarferð til London og áttum góðan tíma saman þar.
Fékk ógeðispest þennan mánuðinn og allt sem ég borðaði kom út sem piss í gegnum rassinn.

Nóvember: Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar var haldin í Vatnsdal.
Reynt var að kveikja í blokkinn okkar.
Jólahlaðborð í Sjallanum og magasár myndaðist vegna áhyggja hvað ætti að gefa Óla í jólagjöf.

Desember: Endalaust jólagjafastúss, jólaþrifnaður, jólakortagerð (sem komust svoekki til skila!) og annað skemmtilegt. Ennþá meiri áhyggjur af jólagjöf handa Óla.
Gísi og co. komu norður og eyddu jólunum með okkur á meðan örverpið spókaði sig um á Hawaii en ég held að hann sé í Mexico núna.
Átti yndisleg jól með fólki sem mér þykir vænt um og fagnaði nýja árinu með best strák í heimi :-*

... hvað ætli þetta ár beri í skauti sér??

This page is powered by Blogger. Isn't yours?