miðvikudagur
FM957
Það eru sumir hlutir sem maður gleymir aldrei.... ég man til dæmis alltaf hvar ég var þegar ég frétti að Díana prinsessa væri dáin. Ég man líka þegar undankeppin fyrir Eurovision var skemmtileg og fullt af hressandi lögum sem kepptu sín á milli. Hver man ekki eftir Sólarsamba með Magga Kjartans.... Maggi og dóttir hans að taka einhver ferlega hallærisleg sambaspor. Eða öllum þessum hressandi lögum þar sem ung kona með hrikalega mikið permanet spilaði á magahljómborð.... sjetturinn hvað það var töff. Það er til fullt af ódauðlegum lögum sem hafa tekið þátt í undankeppninni en klárlega er það eitthvað sem við munum ekki verða vitni að aftur. Þetta skelfilega ”tónlistar”slys sem átti sér stað á laugardagskvöldið var eins og versti gjörningur með Önnu spuna. Vá hvað við eigum mikið af lélegum lagahöfundum og skelfilegum söngvurum!!
Í gærkvöldi ákvað ég svo að fylgjast með tónlistarverðlaunum FM957.... villtist inní einhverja upphitun þar sem FM957 gengið var á rauða dreglinum að taka viðtöl við alla frægu popparana á Íslandi... Nylon og svona! Finnst ekkert skrýtið að þetta fólk sé geymt í útvarpinu.... fékk einhvern þann versta kjánahroll sem sögur fara af þegar Gassi og Svali voru að taka viðtal við Jeff Who. Hugsaði oft og mörgum sinnum með mér að það bara gæti ekki verið að það væri verið að sýna þetta í sjónvarpinu....
... Mér finnst Magni leiðinlegur!