<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

Ham.... 

Enginn smá munur að eiga bróður sem hefur unnið í skinkunni. Hann býr að ævarandi reynslu hvað færiband og annan viðbjóð varðar. Ætla ekki að tala um þetta niðurdrepandi-, heilarýrnunar- og húðþurrkunartímabil í lífi drengsins heldur að loksins kom þessi reynsla að notum.... reyndar ekki fyrir hann (enda stór efast ég um að hún muni nokkurntíman gera það) heldur fyrir mig. Þurfti að skrifa 80 jólakort í vinnunni og er það svo sannarlega færibandavinna þar sem sami texti fékk að standa í öllum kortunum.

Fékk góðar leiðbeiningar frá skinku- Brjánsa hvernig ég ætti að haga mér í þessari færibandavinnu..... aðal reglan er að halda höfðinu allan tíman niðri og ekki líta upp (yfirmaðurinn gæti tekið eftir að þú værir að rétta úr þér og ákveðið að öskra á þig að skrifa hraðar á kortin), því hraðar sem þú vinnur því fleiri jólakort þarftu að skrifa þannig að best er að halda bara jöfnum hraða og taka meðaltals skinkuna á þetta (jólakort í mínu tilfelli)... ef þú vilt halda geðheilsunni er best að hlusta á tónlist á meðan þú skrifar á kortin. Já, og ef þú vilt pásur þá skaltu byrja að reykja....

Endaði svo á því að skrifa nafnið mitt undir öll kortin.... fékk flash back frá því þegar ég var fræg að gefa eiginhandaáritanir þegar ég var í Helga og hljóðfæraleikurunum!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?