laugardagur
Saddam hengdur.....
föstudagur
Jólin allsstaðar
Jól á sunnudaginn... ætla að koma mér heim úr vinnunni og í jólafrí. Efast um að ég nenni eitthvað að koma hingað í vinnuna milli jóla og nýárs... elska þessa vinnu!
Gísli bró ætlar að mæta á Norðurlandið með konuna og krílin ef veðrið hagar sér skikkanlega.... verður frábært að hafa þau hérna! Bjössi er hinsvegar bara eitthvað að chilla á Hawaii og verður stór furðulegt að hafa þann rugludall ekki hjá sér um jólin, ég reyni að þrauka!
Vil svo bara óska ykkur öllum gleðilegra jóla og takk fyrir allt það gamla góða :-) Hafið það rosalega gott um jólin hlakka til að sjá ykkur sem flest á nýju og spennandi ári!!
Kiss kiss
KataHá!!

miðvikudagur
Ellimerki??
mánudagur
....
Ohhhh, fæ ógeðishroll og illt í eyrum að hlusta á Margréti Eir nauðga ”Horfðu til himins” á svona hrottalegan hátt!!
föstudagur
Ham....
Enginn smá munur að eiga bróður sem hefur unnið í skinkunni. Hann býr að ævarandi reynslu hvað færiband og annan viðbjóð varðar. Ætla ekki að tala um þetta niðurdrepandi-, heilarýrnunar- og húðþurrkunartímabil í lífi drengsins heldur að loksins kom þessi reynsla að notum.... reyndar ekki fyrir hann (enda stór efast ég um að hún muni nokkurntíman gera það) heldur fyrir mig. Þurfti að skrifa 80 jólakort í vinnunni og er það svo sannarlega færibandavinna þar sem sami texti fékk að standa í öllum kortunum.
Fékk góðar leiðbeiningar frá skinku- Brjánsa hvernig ég ætti að haga mér í þessari færibandavinnu..... aðal reglan er að halda höfðinu allan tíman niðri og ekki líta upp (yfirmaðurinn gæti tekið eftir að þú værir að rétta úr þér og ákveðið að öskra á þig að skrifa hraðar á kortin), því hraðar sem þú vinnur því fleiri jólakort þarftu að skrifa þannig að best er að halda bara jöfnum hraða og taka meðaltals skinkuna á þetta (jólakort í mínu tilfelli)... ef þú vilt halda geðheilsunni er best að hlusta á tónlist á meðan þú skrifar á kortin. Já, og ef þú vilt pásur þá skaltu byrja að reykja....
Endaði svo á því að skrifa nafnið mitt undir öll kortin.... fékk flash back frá því þegar ég var fræg að gefa eiginhandaáritanir þegar ég var í Helga og hljóðfæraleikurunum!!

Geldingur
Er búin að vera með krónískan fjörfisk í hægri kinninni í nokkrar vikur.... ansi magnaðir kippir þar á ferð.
Veit annars ekki hvaða fullkomunarárátta það er sem hrjáir mig þessa stundina. Að geta ekki bara verslað nýja diskinn með Friðrik Ómari og gefið Óla í jólagjöf.... veit reyndar ekkert hvort hann sé einhver aðdáandi Frikka en ég veit að ég myndi aldrei höndla það að hlusta á þetta væl og verð ég því að leggja ansi mikið á litla heilann minn þessa daga fram að jólum við að finna eitthvað sem við bæði munum njóta góðs af.
Grímsi frændi (Þorgrímur Þráins) ætti bara að byrja aftur að skrifa bækur og þá væri maður aldrei í vafa hvað ætti að gefa í jólagjöf.... fengju allir bók með Grímsa enda einstaklega góður rithöfundur þar á ferð.
Það bara getur ekki talist eðlilegt að vera svona stein geld í hausnum....!!

Helgarfréttir
Færsla númer fimmhundruð.... já, held ég verði að fá mér súkkulaði og fagna ;-)
Ákvað að byrja að skrifa jólakort um helgina.... þurfti góðan undirbúning þannig að ég byrjaði á því að leggjast í sjóðandi heitt bað, fór í náttfötin, sótti mér ískaldann bjór inní ísskáp, setti nýja diskinn með Damien Rice í spilarann og byrjaði að skrifa. Reyndar voru þetta ljótustu jólakort sem ég hef séð. Alveg merkilegt, ég tók pakka sem var með nokkuð fallegu korti framaná og ákvað að kaupa bara 2 pakka af svoleiðis.... opnaði pakkann og inní honum var eitt fallegt kort (þetta sem sást utanfrá) og svo 9 alveg skelfilega ljót..... en jæja, verður bara að hafa það!!
Eftir jólakortaskrifin skelltum við okkur í bíó á Holiday og er hún alveg agalega krúttleg, mæli með henni..... svona kúrauppísófaoghafaþaðkósímeðkærastanum- krúttleg mynd!
Héldum áfram í menningunni á laugardaginn og fórum í leikhús, það var bara snilld :-)
Ferlega skemmtilegt leikrit.... en höfundurinn er væntanlega mjög sjúkur í hausnum og þess vegna ákváðum við að taka ekki þátt í umræðunum á eftir þar sem við erum alveg nógu klikkuð fyrir!
Hrafnista lokar snemma á laugardagskvöldum og ákváðum við því bara að sækja pizzu á Greifann og fara með hana heim. Mjög góð ákvörðun en atvikið sem ég lenti í þar er eitt það fyndnasta.
Óli lagði bílnum beint fyrir framan Greifann þannig að ég gat setið í bílum og fylgst með fólkinu sem var inni að borða. Á meðan Óli stekkur inn til að sækja pizzuna kem ég auga á par sem er að borða, strákurinn tekur eftir Óla (er gamall vinur hans) og lítur svo á bílinn og sér mig.... minnist greinilega á það við kærustuna að Óli sé með einhverja stelpu í bílnum, þá verður kærastan auðvitað að skoða kvikindið.... ekkert lítið forvitin! Kærastan snéri baki í mig og þurfti því að snúa sér í hálfhring til að sjá mig, sitjandi útí bíl. Guð minn góður hvað þetta var áberandi og hallærislegt.... þau talandi saman (alveg augljóslega um mig) og stelpan snéri sér við á svona 5 sek fresti. Veit ekki hvort þau hafi haldið að ég sæi þau ekki en á tímabili langaði mig bara til að vinka í þau en gat það ekki þar sem ég hlóg svo mikið.... var farin að gramsa í hanskahólfinu bara til að horfa ekki upp og sýna á mér andlitið. Svo mætti Óli til baka, með pizzuna og þegar hann keyrði í burtu lá við að kærastan hefði staðið upp og hlaupið að glugganum bara til að glápa aðeins meira.... smart!
Já svo var það bara þrifnaðardagur í gær sem endað með lasagnia og Brynjuís!!
Góð helgi ;-)

fimmtudagur
Radio Ga Ga
Er svo menningarleg að það jaðrar við að nálgast hættumörk..... ákvað að bjóða Ólanum í leikhús á laugardaginn að sjá Herra Kolbert. Var svo að lesa dagskrána um daginn og sá þá að þessi sýning sem við ætlum á er akkúrat einhver hátíðarsýning þar sem umræður verða á eftir sýningunni með höfundi leikritsins, einhverjum David Gieselmann. Jájá ég get örugglega verið ferlega flott á því, sagt nokkra vel valda þýskufrasa og slegið í gegn..... vá hvað þetta verður fyndið!
Annars erum við töffararnir í Akureyrarmoggablaðinu sem kom út í dag... heppin!!
Annars erum við töffararnir í Akureyrarmoggablaðinu sem kom út í dag... heppin!!
miðvikudagur
Gamlar myndir :-)
Er hafin grimm upphitun fyrir ættarmótið sem verður um verslunarmannahelgina á næsta ári.... búið að stofna bloggsíðu þar sem ýmsar myndir hrúgast inn, um að gera að gera þetta af alvöru!! Um helgina tókum ég, mamma og pabbi okkur til og fórum í gegnum gömul albúm til að finna einhverjar skemmtilegar myndir. Mér til mikillar skelfingar fundum við alltof margar myndir af mér frá árunum 1993-1996.... offitutímabilið!! Það kom full oft skelfingarsvipur á Óla þegar hann skoðaði þessar myndir og hefur hann hert á svipunni og gerir allt til að koma í veg fyrir að litla hlussan brjótist aftur út.
Þið haldið sennilega að ég sé bara að rugla eitthvað en ótrúlegt en satt þá tók mamma sig til fyrir 2 árum síðan og henti fullt af myndum af mér frá þessum tíma.... bara mín vegna!!
En ég ætla að taka nettann Hannes á þetta og dúndra inn tveim gömlum myndum:

Fjölskyldumynd frá 1980.... Gamla settið, Gísli ákaflega hamingjusamur með Tobleronið sitt og svo ég ný fædd!
Hér er svo Jói litli/Bjössi/Brjánsi mættur á svæðið.... þvílíkt krútt :-)
Er semsagt tekið af Oddagötuvefnum.... sorry Golli!!
Þið haldið sennilega að ég sé bara að rugla eitthvað en ótrúlegt en satt þá tók mamma sig til fyrir 2 árum síðan og henti fullt af myndum af mér frá þessum tíma.... bara mín vegna!!
En ég ætla að taka nettann Hannes á þetta og dúndra inn tveim gömlum myndum:

Fjölskyldumynd frá 1980.... Gamla settið, Gísli ákaflega hamingjusamur með Tobleronið sitt og svo ég ný fædd!
Hér er svo Jói litli/Bjössi/Brjánsi mættur á svæðið.... þvílíkt krútt :-)Er semsagt tekið af Oddagötuvefnum.... sorry Golli!!
mánudagur
Voice
Jæja þá eru jólalögin spiluð í tíma og ótíma... hlustaði á Voice um helgina og þá kom þetta klassíska ”Ég sá mömmu kyssa jólasvein” þar sem einhver 13 ára stelpa rembist eins og ég veit ekki hvað á öllum háu nótunum. Lét mig hafa það að hlusta á þetta gaul en svona 5 mínútum seinna er þetta lag spilað aftur, nema núna á ensku. Það var skömminni skárra en samt það slæmt að ég slökkti á útvarpinu og lagðist niður með bók bara til að róa mig aðeins niður. Eins og það er nú örugglega krúttlegt að hlusta á krakka syngja þá má halda því fyrir innan veggja skólanna.....
Já og talandi um Voice.... Það er alveg stórkostlegt að stundum þegar ég er að hlusta á þá rás taka útvarpsmennirnir sig til og lesa upp einhverjar fréttir sem þeir finna á netinu..... það er svo sem allt í lagi en oftar en ekki hafa þeir ekki lesið fréttina yfir þannig að þetta hljómar hálf klúðurslegt. Tvær setningar lesnar.... þögn eða eitthvað lag sem hljómar í bakgrunninum..... aðrar tvær setningar lesnar með nokkrum hikum.... lyftutónlistin aftur..... klárar svo fréttina ægilega ánægðir að hafa komið þessum tilgangslausu skilaboðum til hlustenda.
Keipps, um daginn þegar ég var að hlusta ákvað einmitt útvarpsmaðurinn að lesa einhverja frétt sem hann fann..... maður sem hafði verið að keyra einhversstaðar í Króatíu, misst stjórn á bílnum, lent á tré og slapp ómeiddur.
Útvarpsmaður: ”Alveg ótrúlegt að maðurinn hafi ekki slasast meira og þetta segir okkur tvennt.... annarsvegar að bíllinn hlýtur að hafa verið nokkuð góður (já þú ert vel gefinn strákur) og hitt að vegakerfið í Króatíu er alveg rosalegt.... ég held að vegirnir í Króatíu séu almennt eins og að keyra inní dauðann....!!!!”
Æiii.... slepptu þessu bara!