þriðjudagur
Rasistinn ég enn eina ferðina!
Jahérna, er ekki frá því að ég sé á vitlausri hillu í lífinu.... hefði átt að gerast íslenskufræðingur, þá myndu allir tala eins og ég vil!! OK, kannski ekki alveg en þessa dagana er ég að heyra svo mikið af fáránlegum orðum og setningum sem ég vil meina að séu bara algjört bull og eigi sér engan tilverurétt í þessu samfélagi. Er búin að böggast mikið yfir "að sofa í hausinn á sér" og "pissa í sig".... enginn heilvita maður talar svona. Var svo að horfa á sjónvarpið þegar það kemur auglýsing frá Dressman..... ”nú er hægt að fá þrennar skyrtur fyrir tvennar!!” Guð minn góður. Eru bara illa þroskaheftir einstaklingar sem eru að búa þessar auglýsingar til?? Ég bara trúi ekki að þetta hafi sloppið í gegn og sé auglýst svona..... orðið skyrta er eintöluorð og því segir maður ”þrjár skyrtur fyrir tvær” en til dæmis er orðið buxur fleirtöluorð og því segir maður ”þrennar buxur fyrir tvennar”.... sjæse. Maður segir ekki einar skyrta!!
Já og svo vil ég bara koma því á framfæri að ég er alls ekki pólitísk, hef bara mjög ákveðnar skoðanir á hlutum en ég myndi klárlega kjósa Frjálslyndaflokkinn ef ég gæti..... rasistahugmyndirnar mínar myndu passa vel þar inn :-) Takmarkanir á innflytjendur