<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur

All you need is love..... 

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi var haldin á fimmtudaginn í síðustu viku.... aðra eins samkomu hef ég aldrei komið á og er fyllibyttan ég eins og 5 ára barn við hliðina á þessu liði.
Byrjuðum á því að hittast á Blönduósi og skelltum í okkur nokkrum skotum... næst var það rúntur um Vatnsdalinn með hinum ýmsu bjór, skot og rauðvínsstoppum. Koníaksflaskan var látin ganga um rútuna og var sérstaklega vel passað uppá að gædinn fengi nóg. Hann var semsagt rúmlega 60 ára gamall kall með skemmtisögur á færibandi og eftir því sem leið á daginn urðu sögurnar lengri og ruglingslegri. Jæja, við skoðuðum Þingeyrarkirkju (eini staðurinn þar sem ekkert áfengi var haft við hönd) og nýja þjónustuhúsið þar (bættum drykkjarleysið upp inní því húsi) og var síðasta stoppið Blönduvirkjun.... það minnti mig á gott Landsbankapartý með rauðvíni, hvítvíni, bjór og endalausum snittum. Þarna náði gædinn að toppa ferðina með því að kveikja í sjálfum sér!! Já nælonjakki með flísi inní fuðrar ansi hratt upp, hahahaha!!
OK, matur og skemmtidagskrá í Kántrýbæ þar sem Hallbjörn sjálfur lét meira að segja sjá sig..... útþaninn og gamall. Sá reyndar fram á ekkert alltof skemmtilegt borðhald þar sem okkur var raðað niður.... Kata sett á borð með formanni Ferðamálaráðs, formanni Markaðsskrifstofunnar, aðstoðarmanni samgönguráðherra (gaman að hitta heilann á bakvið Sturlu), formanni Ferðamálasamtaka Íslands, bæjarstjóra Blönduóss og hennar manni.... þvílík partýdýr hér á ferð!! En það rættist heldur betur úr þessu og ég skemmti mér ljómandi vel.
Uppúr miðnætti var dagskráin að líða undir lok og ég held að ég hafi líka verið á mínum síðustu orkudropum þannig að ég húkkaði mér far heim til Akureyrar.... þráði að sofa í mínu rúmi með strákunum mínum.

Núna er ég bara ofurtöffari á strigaskóm vaðandi snjóskafla uppað hnjám.....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?